Hversu margkynhneigður er Texi ?
Hann er gagnkynhneigður, samkynhneigður, tvíkynhneigður, sjálfkynhneigður og ókynhneigður.
Hver er þessi Rest?
Hver er þessi Rest?
Þessi Rest er það sem eftir er af jólahátíðinni, en hún stendur til 6. janúar á næsta ári.
Gleðilega rest Golíat. Ljómar upp
Ég er nákvæmlega hér.
Hvað er að frétta?
Þar eð fréttastofa Bagglúts er í sumarfríi þá er ekkert að frétta. Þ.e.a.s ekkert sem skiptir máli.
Komust óvinir ríkisins í veðurvjelina ?
Góðu fréttirnar eru þær að óvinir Ríkisins hafa ekki komið gírugum krumlunum yfir Veðurvjelina.
Þær slæmu eru hinsvegar þessar: Vegna skorts á flæði á böggum og öðrum launatengdum fríðindum, úr fjárhirslum Baggalútíu, í vasa Forstöðumanns Veðurfarsstofnunar Baggalútíska heimsveldisins, hefur Veðurvjelin verið höfð í hlutlausum undanfarin misseri. Því hefur það algjörlrga verið undir duttlungum og skapsveiflum einstakra vaktmanna á Veðurfarsstofnunni hvernig veðrið hefur verið. Þar eð þeir flestir virðast vera eitthvað óstöðugir á geði hefur niðurstaða þess verið jafn óstöðugt veðurfar. Forstöðumaðurinn hefur því miður ekki möguleika á að skerast í leikinn vegna þess að hann er fastur á Túvalú og kemst ekki til starfa fyrr en búið er að skipta um innréttingar í snekkjunni hans. (Það er sko ekki fræðilegur að ég sigli á þessum koppi fyrr en búið er að henda út þessum hryllilegu jade hurðarhúnum og setja nýja úr safírum)
Þangað til þessi mál leysast þá má búast við slagviðri með skítkasti upp á hvern dag.
Af hverju segja menn skál þegar þeir drekka úr glösum? Sýpur á fagurbláum drykk.
Skál er fornt orð um drykkjaílát og er sögnin að skála dregin af því. Svo breyttust drykkjarílát vor og nöfn þeirra, en ekki sá forni siður að slá saman drykkjarföntum, hornum, bikurum, flöskum eða glösum. Alltaf var hið forna orð notað og því segjum við ennþá SKÁL þó að vart sé drukkið úr súpuskálum nema í algjörum undantekningar tilfellum.
Sýpur á fagurgrænum drykk
Af hverju fær strangheiðarlegt fólk flensu ? hóstar
Vegna þess að veira sú sem veldur Innflúensu er illa innrætt kvikindi sem gerir ekki greinarmun á góðu fólki og vondu, heiðarlegu eða hröppum. Eina sem stoppar þessi illyrmi er mótefni sem hægt er að fá í sprautuformi á næstu heilsugæslustöð eða að einangra sig svo frá öðru fólki að veiruskepnan finni engar smitleiðir.
Mig vantar pening. Ætti ég að ræna banka? myndi það borga sig?
Það að ræna banka er vissulega göfug og gegn íslensk íþrótt en er þó aðallega stunduð af eigendum og stjórnendum þeirra. Það er lítið upp úr bankaránum að hafa fyrir okkur sauðsvartan almúgan, sem ekki höfum möguleika á öðru en að ræna íslenskum gjaldmiðli af hræddum miðaldra gjaldkerum.
Því segi ég: Ekki ræna banka nema að þú getir annað hvort tæmt hann innanfrá eins og útrásarvíkingur, eða með því að hakka þig inn á gjaldeyrisreikninga bankans og millifært svo summuna yfir á falinn reikning í hinum svokölluðu útlöndum.
Hvað er Baggalútía mörg megabæt?
...í hinum svokölluðu útlöndum.
Eru hin sk. útlönd enn til ? Vjer höfum sannanir fyrir því að fyrir fáeinum árum voru þau til en eru þau til núna ?
Og ef svo er, hvað eru þau mörg megabæt?