Blómadagar hennar voru líklega veturinn 2006-2007. Þó eru hér enn einhverjar eftirlegukindur auk ágætra nýliða, er halda lífinu uppi.
Það nennir enginn að mæta hér lengur. Ég mæti hér bara helst til að hengja einhvern eða láta hengja mig.
Ullarhaus, kæri nýliði. Þú virkar óttalega heimskulegur núna á meðan þú byrjar setningar á litlum staf og sleppir punkti (eða spurningamerki). Með því að setja hástaf í byrjun setningar (og punkt í lokin) lítur þú út fyrir að vera gáfaður, ríkur og fallegur, hvort sem þú ert það eða ekki.
ég kem hingað alltof sjaldan og rétt það sem regína segir
Blómadagar hennar voru líklega veturinn 2006-2007. Þó eru hér enn einhverjar eftirlegukindur auk ágætra nýliða, er halda lífinu uppi.
Ég er með frjókornaofnæmi þannig að mér líkar mun betur hérna núna.
Satt er það, maður kemur hingað frekar sjáldan orðið. Ætti kannski að skella smá félagsrit?
Ég er alltaf hérna. Kannski að það sé þessvegna sem fólk flýr héðan. Hugleiðir stöðu sína á meðan hann dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég er alltaf hérna. Kannski að það sé þessvegna sem fólk flýr héðan. Hugleiðir stöðu sína á meðan hann dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Getur það ekki alveg eins verið ég sem er o.s. frv.
Ég kenni Smettisskruddunni um.
Ég kenni Smettisskruddunni um.
Ekki trúi ég því að æruverðugir Gestapóar líti við slíkri lágkúru eins og þessari andskotans f.......... Froðufellir og brýtur lyklaborðið í frumeindir með enninu, farandi með bölbænir og Passíusálmana afturábak
Ég er alltaf hérna. Kannski að það sé þessvegna sem fólk flýr héðan. Hugleiðir stöðu sína á meðan hann dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Getur það ekki alveg eins verið ég sem er o.s. frv.
Nei, ég held ekki. Hér var allt í blóma þegar ég ruddist hingað inn, en fljótlega upp úr því fór að halla á ógæfuhliðina. En þá varst þú búin að vera hérna dágóðan tíma án þess að nokkuð slæmt gerðist.
Sekkur æ dýpra i bömmerinn
Maður dettur nú hér inn við og við, en þetta var jú fjörugra hér um árið. Svo þegar ég og hún Nótta mín fórum að daðra og væmnast hvort í öðru flúði fólk umvörpum.
Ég eyðilagði Gestapó með linnulausu teningakasti. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
er aldrei neinn á þessari annars ágætu heimasíðu
Ertu Færeyingur ullarhausinn þinn?
Setur ekki stóran staf í upphafi og endar ekki spurning með viðeigandi merki.
Réttast væri að naga af þér eitthvað mikilvægt líffæri svo þú rétta líffærið fái nægt blóðflæði til að starfa.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hestapestin hefur komið í veg fyrir að ég komi hingað. Hryssan mín, Sigurdula smitaðist af þessari óværu af einhverjum illa hirtum Gestapóa og hefur mátt dvelja langdvölum í fjarlægum kóbaltnámum til lækninga. (Allir vita að kóbalt drip í æð er allra meina bót). Þurrkar neftóbakstaum í bakið á belgvettling sínum, lagar pottlokið og er nú ferðbúinn
Þetta er alt honum De Vito að kenna hann er svo leiðinlegur og Kargi.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Hér er það sem mér finnst um þá sem hætta... gott á þá!, þeir missa þá bara af fjörinu. Alveg er mér sama.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Sorglegast finnst mér þó þegar menn gera löng félagsrit um að þeir séu hættir, þá væntanlega til að aðrir grátbiðji þá um að hætta ekki og strjúka þannig egóinu þeirra. Það er svo grátbroslega pínlegt að það tekur engu tali.
En það er alltaf gaman að sjá gamla Gestapóa koma aftur, þó aðeins í stuttan tíma sé.