Hvar og hvernig verður allt þetta bull til?
Framleiðir þú það frítt?
Er einhver leið til að stöðva flóðið?
Ekki hef ég neitt á móti búddisma nema þó síður sé - sérstaklega af Zentaginu, en mér brá þó í brún að sjá þráð kenndan við mig sem ég man ekki eftir að hafa stofnað. Ef þráður er kenndur við mig þætti mér betra að það væri þráður sem ég stofna sjálfur.
Er einhver leið til að stöðva flóðið?
Nei, alveg vonlaust. Þetta bara flæðir og flæðir þartil við drukknum öll.
Hjálpaðu mér upp, ég get það ekki sjálfur. Ég er orðinn leiður, á að liggja hér. Gerum eitthvað gott, gerum það saman, ég skal láta fara lítið fyrir mér. Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera drukkna. Hvað getum við gert, ef aðrir bjóða betur, dregið okkur saman og skriðið inní skelina? Nei, það er ekki hægt að vera minni maður, og láta slíkt og annað eins spyrjast út um sig.
Hver er beiðni?
Af hverju var beiðni að eyða þræði?
Af hverju var þræðinum einfaldlega ekki eytt að beiðni einhvers?
Starir þegjandi út í loftið
Þarfagreinir fór fram á að þráðurinn væri ei tileinkaður honum en jeg hafði hugst stofna þráð honum til heiðurs og sem liður í jólagjöf. En ljóst er að með því hafði jeg gjört mistök!!
Það er ekki búið að eyða þræðinum, það er bara búið að breyta nafninu á honum.
Ég veit það vel - ef krossamerkið væri ennþá til staðar hefði ég hiklaust eytt þræðinum. En krossamerkið hverfur eftir að ákveðinn tími er liðinn og þá er bara hægt að breyta eða eyða innihaldi að vissu leyti en ekki alveg sjálfum þræðinum.
Þetta er einn af verstu ókostum alnetsins........
Klúðrið á snillingnum sjervitra honum Ívari Sívertssen og líklegast einhverjum fleirum hjer hefur einnig haft það í för með sjer að vjer getum víst eftir ákveðinn tíma ei eytt þeim þráðum er vjer vildum eyða og ei eytt þráðum eftir gömul sjálf sem sum okkar höfðu haft hjer sem er talin lítil sem engin not fyrir lengur
Þú getur ekki eytt þráðum, bara innleggjum ef enginn hefur lagt orð í belg á eftir þér.