[size=18][size=12]Eftir mikla leit andófsmanna BESTA FLOKKSINS hefur fundist óskrifuð regla sem bannar allt grín og glens í stjórnmálum! Regla þessi þykir góð og gild því hún lifir enn góðu lífi í minningasafni öldungs að nafni Hans Böringer IX, sem hefur verið mjög viðriðinn íslenskum stjórnmálum, þó hann hafi ávalts starfað bak við tjöldin, allt frá því hann flúði pólitískar ofsóknir úr heimalandi sínu um miðja seinustu öld. Segir hann að allt frá örófi alda hafi stjórnmálamenn virt þá óskráðu reglu að stjórnmál eiga að vera leiðinleg. Annað myndi vekja athygli óæskilegra einstaklinga á atvinnugreininni og þ.a.l. leiða Ísland til hruns. Sjálfur segist Herr Böringer, eða Böggi; eins og kunningjar hans kalla hann, aldrei hafa verið neitt gefinn fyrir hvorki grín né glens og hefur hann miklar áhyggjur af því hvert þjóðin stefni þegar vitleysingjarnir komast til valda. Haldinn verður fundur á elliheimilinu Grund á laugardagsmorgun í herbergi 121 A, stundvíslega klukkan 07:00 GET, þar sem ræddar verða tillögur hvernig hægt sé að sporna við þessu byltingakennda óargadýri honum Jóni Gnarr og hans heimska hópi l[/size]eppalúða.[/size]
Þú ert greinilega óhæfur í að skrifa innlegg svo... Yppir öxlum
Takk fyrir ábendinguna Grái. Alltaf gott að hafa gott fólk í kring um sig til að mynna mann á hvar maður stendur:)
Ég tek undir með hæstvirtum Grágrím.
Ábending til nýliða
Hér í Baggalútíu höfum við nægar áhyggjur af okkar eigin stjórnmálum og höfum ekki tíma til að hnýsast í mál
einhverrar ímyndaðar veraldar sem kallast "raunheimar" eða "bestiflokkur"
Það hefur aldrei verið sannað af okkar færu vísindamönnum sem og Lærða Geoff, Dr Sauðberg og fleirum að þessir
"raunheimar" séu i raun til.
Það sem ég er að reyna að segja er að ekki draga ímyndaðann sýndarveruleika í okkar heilbrigða, ákavítis og fagurbláa samfélag.
Bestu kveðjur
Hvæsi.
Er ekki hægt að stroka svona óbjóð og rógburð út ?
Þetta er það mesta bull sem ég hef nokkurntíma séð!!!! Leitar að einhverjum sem langar að éta nýliðan upp til agna
Lærðu réttritun og komdu svo og vertu skemmtilegur... skemmtileg?.. skemmtilegt !?
Ég vil fá að velja mér bittling, neyðist fulltrúi Baggalútíska heimsveldisins til að taka martraðar veröld raunheima yfir um stundarsakir. Styður báðum höndum á veskið, hallar sér fram og hlær eins skrækum hlátri og unnt er
Ég býð harakiri og líkama minn. Velkomin takið mig. Ég sé ykkur útí hrauni.
Seppuku væri betra boð.
Af hverju eru þið svona leiðinleg við litla sæta apann? Ég er viss um að hann gæti lært að vanda sig og skrifa fallegt íslenskt mál með góðu uppeldi og réttri tilsögn. Kargur og Huxi, þið takið að ykkur verkið af ykkar alkunnu ljúfmennsku vænti ég?
Til er ég að kenna litla apakrúttinu góða siði. Þeð þarf hins vegar að passa að Kargur nái ekki til hans og spilli honum með munnsöfnuði, tóbaksfík og vafasömum glímubrögðum.
Ég er sármóðgaður yfir stórkostlegum aðdróttunum í minn garð. Hnussar hátt og snjallt Eins og allir vita er ég ímynd fágaðrar framkomu og umburðalyndis í hvívetna. Fær sér í nefið
Eini gallinn við þessa hugmynd er að Kargur kann ekkert í glímu.
Ég get að minnsta kosti pakkað þér saman gerpið þitt. Fær sér í nefið
Víí... slagur í uppsiglingu.
Poppar og kemur sér vel fyrir í sófanum
Ég get að minnsta kosti pakkað þér saman gerpið þitt. Fær sér í nefið
Já er það ? Teygir sig í tóbaksdósina hans Kargs og fær sér líka í nefið, miklu meira en Kargur
Hnerrar öllu framan í Karg
Litla systir mín gæti pakkað þér saman.
Hefur enginn samt tekið eftir því undanfarið að það er grilllykt allstaðar?