Ræskir sig Ertu viss um að ærnar fari að bera? Gleymdist ekki eitthvað?
Hrúturinn var því miður getulaus
Já, þar kom sér vel að ég hafði látið sæða ærnar með kóbaltbættu sæði úr eðalhrútnum Uppspuna frá Rótum. Nú gildir samstaðan vinir, enginn má liggja á liði sínu. Spilverkin bíða. Kargur, ekki fara alltaf í varnarstöðu, sækjum fram! Girðir sig í brók, finnur til hamar og syngur "Blessuð sértu sveitin mín"
.... Hrútaber, þú átt víst ekki nokkur knippi af baggaspottum?
Nei því miður mér tókst að týna þeim þegar ég var í kóngulóarleik á háaloftinu í fyrndinni. En því verður reddað.
Veist þú nokkuð hvað í fjandanum ég gerði við flórskófluna?
Merin hans Gúnda æddi hér um eldhúsgólfið. Hún hafði að minnsta kosti þann vott af virðingu við mig að skíta upp við niðurfall, en þar sem þetta er illa meltur jarðvegur sem ég er að fást við í eldhúsvaskinum þá vinsamlegast vantar mig hana sem fyrst.
Flórskafan er úti hjá blásaranum. Ég notaði hana til að berja til túðuna. Ertu sleipur að járna, ég þarf að láta járna Sigurdulu, taka hana af skaflaskeifunum.
Herfa í jötunmóð ? Herfar í jötunmóð
Jaæja, best að fara að koma sér. Ég er að fara að tína lambaspörð í krækiberjafötu, svo ætla ég að þvo hestana og lesa svo markaskrána á meðan ég bíð eftir því að vel stillt búmannsklukkan veki mig í smalamennsku. Annað væri nú, svona snemmsumars. Svo náttúrulega að tefla skák baki brotnu við vinnumennina. Sá sem tapar þarf að planta rófunum.
Planta rófunum? Er ekki þægilegra að sá rófufræi beint í beðið?
Ekki í þessari sveit! Svo verður rófnabeðið líka notað í sumar undir hveitiklíðsrækt.
Hvenær gengur svo rófan?
Ég er að mauka rabarbarasultuna í þessum töluðu orðum. Það er svo matur klukkan 7, þar verður skjóni gamli etinn.
Jæja!
Jamm! Mikið er gaman að hvað Massanum er vel við haldið hjá þér. Hann á eftir að gegna lykilhlutverki í heyskapnum í sumar.
Sest að borðum og raðar hrossakjetinu í andlitið á sér
Jú, þinn er uppurinn.
Farðu í biðröðina þarna til að ná þér í eyðublöð til að sækja um aukinn kvóta. Starir þegjandi á röðina
Ekki stríða greyinu Billi. Hann á auðvitað að fara í hina röðina til að sækja um kvóta.
Bendir á hina röðina