Ah, já. Einmitt. Þar mun hann fá upplýsingar um hvaða eyðublað hann þurfi fyrir umsóknina.
Mér sýnist að kjaftæðiskvótinn hafi allur farið til Sannleiksins. Reyndar er hann farinn að framleiða umfram kvóta, sem er samkvæmt nýjum reglum með öllu bannað og varðar sekt og kvótasviptingu.
Neisko, er ekki frú Kargur, sá lélegi glímumaður farinn að ybba sig.
Fær sér í nefið
Ætli það sé ennþá til nóg af Baggaböndum í sveitini? Það var ótrúlegt hvað maður sá mikið af frábærum viðgerðum með því úrvalsviðgerðarefni.
Baggaböndin eru að hverfa. Það eru bara einstöku sérvitringar sem binda í litla bagga núorðið. Og allar alvöru rúlluvélar vefja neti utan um rúllurnar. Þó sjást enn rúllur með bandi, en það er ekki alvöru baggaband. Rúllubandið er mun grennra. Ótalið er svo stórbaggabandið; það er sko baggaband í lagi. Ég voga mér ekki ríðandi úr byggð nema í hnakktöskunni sé hönk af stórbaggabandi. Með því má laga hvað sem er sem aflaga fer.