Kranabílar kvóta fá
kindur steikja útþynnt mjá
Kranabílar kvóta fá
kindur steikja útþynnt mjá
Farsímarnir ferskjur dá
Kranabílar kvóta fá
kindur steikja útþynnt mjá
Farsímarnir ferskjur dá
fuglar eru símaskrá.
Kindur heita Kanarí
Kindur heita Kanarí.
Krana hef ég sett á ský.
Lóan syngur dirrindí.
Kindur heita Kanarí.
Krana hef ég sett á ský.
Lóan syngur dirrindí.
Bráðum koma jólin.
Upprifin les uglu klám
Upprifinn les uglu klám
Utangarðs er kýrin rám
Fyrra vor ég geymi í gám
Upprifinn les uglu klám
Utangarðs er kýrin rám
Fyrra vor ég geymi í gám.
Gin og tónik vex á trjám.
Nótin þráir nikótín.
Nótin þráir nikótín.
Nú er dúkkan svaka fín.
Nótin þráir nikótín.
Nú er dúkkan svaka fín,
nefnilega líkt og mín.
Nótin þráir nikótín.
Nú er dúkkan svaka fín,
nefnilega líkt og mín.
Lóan kvakar eins og svín.
Vitleysan er vandasöm.
Vitleysan er vandasöm.
Vatnsleysan er leiðitöm.
Vitleysan er vandasöm.
Vatnsleysan er leiðitöm.
Vindleysan hún virðist fröm.