Já kæru landar, Baggalútía hefur nú eignast þjóðarjórturleður, fyrst allra ríkja í heiminum! Jórturleðrið ber hið frumlega heiti 5 en bragðtegundin sem hér sést ber nafnið Cobalt.
Leðrið sjálft er að sjálfsögðu fagurblátt og virka litarefnið er skv. mínum traustustu heimildum hreint kóbalt.
Legg ég því fram þá tillögu að allt annað tyggigúmmí verði bannað innan vorra sívaxandi landamæra og að baggalútíska ríkið hætti strax viðskiptum við öll þau ríki sem ekki gera slíkt hið sama innan tveggja klukkustunda frá setningu þessara laga.
Ljómar uppSkoppar út í jórturgúmmíbúð Baggalútíu og kaupir 5 Ljómar enn meira.
Hingað til hef ég jafnan svarað því til, bjóði mér einhver jórturleður til tuggs, að slíkt hafi ég ekki toggið lengi og hafi engan hug á að taka upp annan eins ósið. Mér sýnist að nú verði ég að endurmeta verðmæta- og gildismat mitt í þessum efnum.
Hann Fríklaugur gamli, sem gaf okkur gulu, grænu og hvítu tyggjóplöturnar í gamla daga, framleiðir þetta víst.
Frumheimild um nýja kóbalttyggjóið
Hvur fjárinn, tveggja ára gömul tíðindi?
Ég hef þó ekki rekið augun í þetta fyrr en nú.
Blæs gríðarstóra cobaltbláa tyggjókúlu Tyggjókúlan springur með háums smelli
Hér er frétt um Kóbalt sem ekki er í vörslu heimsveldisins. (Efnasamsetning hans er um 82,4% járn, 16,4% nikkel og 0,76% kóbalt.)
Þarf ekki að gera út fleiri leiðangra?
Þessum tillögum höfnum vjer en styðjum framlag yðar til framleiðslu muna úr kóbalti.