Eftir mikla þrotlausa vinnu, sem krafðist allrar kunnáttu minnar sem vopnasmiðs og visku minnar í áhugamannanáttúruvísindum hef ég nú byggt fyrstu prótótýpuna af vopni sem eingöngu er knúið af kóbalti.
Meðfylgjandi er mynd af vopninu:
Vonandi átt þú nóg Kóbalt. Hvað gerist þegar vopnið verður svangt langar mig ekki til að vita
Vonandi átt þú nóg Kóbalt. Hvað gerist þegar vopnið verður svangt langar mig ekki til að vita
Vopnið er knúið af kóbaltkljúf sem endist í kvartmilljón ár, það er nú samt meiri endemis stybban af honum.
Opnar gluggann upp á gátt og bölvar
Er ekki hægt að láta vopnið hafa annað litarhaft? Mér sýnist það nefnilega vera nokkuð sjálflýsandi, sem er líklega ekki ýkja skemmtilegt eigi að beita því í skjóli nætur. Ef fleiri litir eru í boði er þetta hið merkilegasta framtak, og óska ég þér þá til hamingju.
Hvað er þetta?
Ég færi Baggalút og undirstofnanir hans skrefi nær heimsyfirráðum og það eina sem þú menn tala um er litur vopnsins!
Ég ítreka að þetta er prótótýpa, lokaútgáfan mun verða sápugræn rétt eins og skífusíminn hans Derricks heitins.
Já þetta eru svo sannarlega gleðifréttir. En ef kvikindið flýgur af stað, lendir það þá ekki með látum?
Hvað áttu við með "Derrick heitinn". Hann er sprelllifandi ennþá.
Derrick? lifandi?
Nei hættu nú alveg! Hver var það sem dó þá?
Verk alsherjargoðans gerðu hann þó ódauðlegan.
Nú? Hefur hann kóbalt til yfirráða? Efast um að slíkt sé unnt án vænrar flísar af feitum kóbaltmola..
Flestir já, en ekki allir.
Ég sem t.d. allan minn kveðskap, breyti honum síðan yfir í "bænarí" og flyt hann síðan að lokum.
"Öldum áður en fyrstu öldur Kvikasilfurhafsins risu til fundar við hvora af nýju sólunum, skein ljós Mýrkjartans á Golemið og ekkert annað."
-
NÁKVÆMLEGA!
Þó að innri öfl gólemsins séu enn hernaðarleyndarmál þá get ég fullyrt að það hefur sprengikraft sem samsvarar 10 Abrahams-skriðdrekum og er betur að vígi búið en sameinaður her margra smáríkja.
Og þetta er bara byrjunin, bráðum verðum það við sem stelum auðlindum frá amerísku flónunum í vestri!
Bíðiði bara og sjáið!
SEMPER FIDELIS BAGGALÚTUR!
Noojj! En hvað hann er mikið krútt!
Sendu hann tafarlaust á rannsóknarstofuna og ég skal sjá hvort ég get ekki breytt honum í einhverskonar gjöreyðingarvopn.
Þetta er góður þráður. 58 stjörnur
Heyrðu hérna kemur svo samsærið.