Jæja, nýr leikur. Þið ætlið þó ekki að láta mig tapa honum strax í fyrsta skoti?
Nei - og einhver mun eflaust líka svara oss og bjarga oss þannig frá niðurlægjandi tapi.
Þetta er allt í lagi, ég tapaði leiknum.
Minni oss rétt, þá hefir áður birzt leikur í ætt við þennan. Þá eigum vér eigi við þann, þar sem hinn síðasti sigrar.
Þetta er skemmtilegur leikur, og minnir mig örlítið á það þegar við vorum nokkur sem kepptumst um að fá sem fæst stig í tetris (sovézka tetris).
Æ æ, hef ég nú tapað leiknum?
Hvað er í skammarverðlaun?
Eigi er oss kunnugt um það en þjer getið reynt að komast að því með því að svara oss. Í ljósi reynslunnar fram að þessu grunar oss þó að það myndi mistakast (þ.e. mistakast að komast að því hver skammarverðlaunin eru, ekki að svara).
Fær mistakast.
Þetta er skemmtilegur leikur, og minnir mig örlítið á það þegar við vorum nokkur sem kepptumst um að fá sem fæst stig í tetris (sovézka tetris).
Æ æ, hef ég nú tapað leiknum?
Forvitnast gífurlega Hvernig er sovézkur tetris?
Tapar!
Það var nú bara tetrisleikurinn sem var í gömlu mökkunum uppúr 1990. Ég er ekki frá því að leikurinn hafi verið skrifaður af Sovétmönnum, því að bakgrunnsmyndirnar í hverju borði voru alltaf af tækniafrekum þeirra og ýmsu þessháttar. Auk þess halda Rússar því fram að þeir hafi fundið upp tetris. Maðurinn sem átti mestan þátt í því mun seinna hafa leikið í Bond-mynd siðblindan sovézkan forritara.
Leggur 7 ása og kóngaalslemmu á borðið og tapar með glæsibrag.
Stillir upp í rússneska rúllettu...
... hefur leik...
Bjargar Billa Hjúkk, þarna munaði liltu. Þú ert bilaður Billi!
Æ....Rækallans vesen. TAPAR MEÐ UNDIRBURÐUM
Jæja, ég verð víst að játa mig sigraðan.
JESS, ÉG VANN!
Dansar stríðsdans í kringum gullna styttu af sjálfum sér
JESS, ÉG VANN!
Hvenær ?
Í þessu innleggi, það er innlegginu sem þú ert að vitna í. Ég vissi nefninlega fyrirfram að einhver myndi segja eitthvað á eftir mér og þar með verð ég ekki síðastur til að svara og vinn þar með leikinn. Ég ætla hins vegar ekki að taka áhættuna á því að tapa leiknum með því að svara þessi innleggi þínu á eftir þér!
PS. Regína, ég er bara með eins augu og mér hentar hverju sinni!
Tekur sólgleraugun af Dúdda. Sko, ég vissi að þú værir bláeygur.