Ég hef heyrt að Baggalútur sé hættulegur staður og ætla því að læðast með veggjum um stund. Það eru allir svo kurteisir hérna að að mér setur hroll.
Ef þú skrifar rétt, með punktum, stórum stöfum og öllu tilheyrandi, þá erum við ekkert hættuleg. Fyrir utan Hvæsa, hann er stórhættulegur. Glottir eins og fífl
Vertu velkominn og farðu nú í Innflytjendahliðið!
Fúlan laumufarþega
fann, já það er naumast
að fara'nn verður varlega,
veggjum meðfram laumast.
Af hverju er annars ekki stór stafur í nafninu þínu, ha?? Potar í bumbuna á nýliðanum
Ég er ekkert kutreis þarna sítugemlingur!!!
Velkominn hingað, bogason.
Farðu varlega.
Passaðu þig á myrkrinu og ekki koma hingað eftir miðnætti.
Ekki fór ég varlega. Og þó (veit að það er illa séð að byrja settningu á og) Ég passaði mig á Grænlensku blómarósunum, skaut hreindýr og héra, veiddi óhemju af silung, tveir selir féllu líka og það munaði litlu að mér tækist að skjóta ísbjörn í sjálfsvörn. Því miður fældist hann svo við neyðarblysin að ég gat ekki verið þekktur fyrir að skjóta kvikindið á flótta.
HÆ Anna og Nermal, hvar voru þið í sumar? Allavega gaman að sjá ykkur!
Bara til þess að fara ei varlega, þá hef ég vellt því fyrir mér lengi hvort eina leiðin til að losna við krullaða sýklópatann sé að strangheiðarleg og góðgjörn ungmey einfaldlega skyti kvikindið. Bæri því við, að hún sem framtíð Íslands, hefði fullann rétt til að vernda óborin börn sín fyrir Davíð Oddsyni.
Fengi í mesta lagi 4-5ár og laus eftir tvö. Þó, ef svo heppilegi vildi til að ég væri orðinn forseti, þá fengi hún orðu.
Ekki fór ég varlega. Og þó (veit að það er illa séð að byrja settningu á og) Ég passaði mig á Grænlensku blómarósunum, skaut hreindýr og héra, veiddi óhemju af silung, tveir selir féllu líka og það munaði litlu að mér tækist að skjóta ísbjörn í sjálfsvörn. Því miður fældist hann svo við neyðarblysinn að ég gat ekki verið þekktur fyrir að skjóta kvikindið á flótta.
HÆ Anna og Nermal, hvar voru þið í sumar? Allavega gaman að sjá ykkur!
Hvað ertu að gera með það að skjóta seli? Er nokkuð hægt að nýta þá nema í bætur fyrir Halldóri Á. ?
Dóri fengi aldrei neitt af mínum feng. Ekki einu sinni bót fyrir rassgatið. Selsgreyin voru skotin af drápsfýkn og til að gleðja ferjumennina. Þeir fengu skinnin og það af keti og spiki sem við gátum ekki torgað.
Bjössa mátti hinsvegar ekki skjóta nema hægt væri að sanna sjálfsvörn fyrir rétti.
Því varð ég að setja gikkfingurinn í rassinn meðan inuitarnir skutu á hann úr merkjabyssum.
Já, maður verður að fara sér hægt í kringum þessa prófessjónal skriftara. Ég, sem dæmi, fann mér afar kósý horn og hef hugsað mér að dúsa þar til að byrja með, kannski fikra mig aðeins nær þegar á líður.
varðanddi þeta opnunar innlegg og svariðhenar villimeijar að þá er það bara kjaftði.
Klórar sér í höfðinu