— GESTAPÓ —
Hvar verður þú í kvöld?
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3, 4  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 26/9/09 23:40

Ívar Sívertsen mælti:

dordingull mælti:

Ívar Sívertsen mælti:

Já, ég kíki jafnvel á það stuð... en ekki lengi samt... því er nú andskotans helviti ver og miður.

Ef einhverstaðar er fjör og stuð þá ertu sí-grenjandi. Skabbi kjaftar því vafalaus hvar þetta fjör verður(þarf vað skoða svo mikið að ég nenni ekki að gá að því sjálfur)xT

Nújâ? Ég hef ekki grenjað í mörg ár.

Vjer erum eiginlega of þreyttir og syfjaðir til að grenja yfir að vera að missa af einhverju - höfum verið nær stanslaust að í allan dag fram á kvöld, allt gærkvöldð og morgundagurinn er að mestu undirlagður líka. Leggjum vjer hjer með til að bannað verði með lögum að áhugaverðir viðburðir rekist á ‹Glottir eins og fífl› ‹Brestur í óstöðvandi grát›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 27/9/09 01:21

Ég var heima með eitranir af völdum óvina ríkisins.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Ég verð heima hjá mér, a.m.k. úr því sem komið er, af því að ófiniir ríkisins hafa byrlað mér eitur sem gera þaðr að verku mað ég get hvortki tjáð mig né skriðfað rétt efti fir a ð ég er mnýbúinn að drekka þreetta eitur.

Vona að einhver komist að því hvers lags þetta eityrur er.

En hún snýst nú samt
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 27/9/09 13:12

Línbergur Leiðólfsson mælti:

Ég verð heima hjá mér, a.m.k. úr því sem komið er, af því að ófiniir ríkisins hafa byrlað mér eitur sem gera þaðr að verku mað ég get hvortki tjáð mig né skriðfað rétt efti fir a ð ég er mnýbúinn að drekka þreetta eitur.

Vona að einhver komist að því hvers lags þetta eityrur er.

Þetta kallast stafaeitur, nákvæmniseitur og eitureitur. Ég varð fyrir háls- nef- og eyrnaeitri... svo slæmu að lungun eru farin að hósta því upp!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 27/9/09 21:05

Ekki veit ég hvar þið náið í þennan óþverra. Sturta sjálfur í mig öllu því eitri sem til mín flýtur, jarðgerðu sem kemisku og verð aldrei veikur.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Genji 29/10/09 23:51

Ég verð heima að vinna í því að leggja Völuspá á minnið útfrá Konungsbók.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
spritti 19/11/09 21:57

Ég verð heima

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 19/11/09 22:16

Ég verð bara kúrandi við hlið Nóttu minnar.

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 17/1/10 12:10

Í Lundúnum að bíða eftir vél til Ástralíu. ‹Haskar sér út í leigubíl›

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 17/1/10 12:37

Við skötuhjúin verðum að slafra í okkur dýrindis mat hjá dýrindis fólki.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Í kvöld, ætla ég að stúdera hrútspung.

‹Ljómar upp›

Veiru og sýklavopnasérfræðingur Baggalútíu - Frilla Konungs - Líffræðikennari í Barnaskóla Baggalútíu - Kóbaltblá - Jólabarn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 17/1/10 19:58

Í stól fyrir framan sjónvarpið. Þetta kallar maður að lifa á brúninni.

Ég laug. Ég sat í einstökum Volvo-sófa fyrir framan sjónvarp. Sófinn fær fimm stjörnur.

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 18/1/10 14:00

Ég verð í velmegun og lúxus í Danaveldinu góða.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 18/1/10 16:54

Vjer verðum þar sem vjer verðum. Annað teljum vjer að sje algjörlega útilokað enda væri þá um að ræða gróf brot á mörgum náttúrulögmálum.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 20/1/10 09:09

Í kvöld verð ég í fyrramálið. ‹Starir þegjandi út í loftið›

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 20/1/10 12:09

Billi bilaði mælti:

Í kvöld verð ég í fyrramálið. ‹Starir þegjandi út í loftið›

Er tímavélaþjófurinn að koma upp um sig?

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 21/1/10 05:02

Nei, tímabeltaþjófurinn, ekki tímavélar.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 21/1/10 12:46

Heima.

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
        1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: