Já, ég kíki jafnvel á það stuð... en ekki lengi samt... því er nú andskotans helviti ver og miður.
Ef einhverstaðar er fjör og stuð þá ertu sí-grenjandi. Skabbi kjaftar því vafalaus hvar þetta fjör verður(þarf vað skoða svo mikið að ég nenni ekki að gá að því sjálfur)xT
Nújâ? Ég hef ekki grenjað í mörg ár.
Vjer erum eiginlega of þreyttir og syfjaðir til að grenja yfir að vera að missa af einhverju - höfum verið nær stanslaust að í allan dag fram á kvöld, allt gærkvöldð og morgundagurinn er að mestu undirlagður líka. Leggjum vjer hjer með til að bannað verði með lögum að áhugaverðir viðburðir rekist á Glottir eins og fífl Brestur í óstöðvandi grát.
Ég var heima með eitranir af völdum óvina ríkisins.
Ég verð heima hjá mér, a.m.k. úr því sem komið er, af því að ófiniir ríkisins hafa byrlað mér eitur sem gera þaðr að verku mað ég get hvortki tjáð mig né skriðfað rétt efti fir a ð ég er mnýbúinn að drekka þreetta eitur.
Vona að einhver komist að því hvers lags þetta eityrur er.
Ég verð heima hjá mér, a.m.k. úr því sem komið er, af því að ófiniir ríkisins hafa byrlað mér eitur sem gera þaðr að verku mað ég get hvortki tjáð mig né skriðfað rétt efti fir a ð ég er mnýbúinn að drekka þreetta eitur.
Vona að einhver komist að því hvers lags þetta eityrur er.
Þetta kallast stafaeitur, nákvæmniseitur og eitureitur. Ég varð fyrir háls- nef- og eyrnaeitri... svo slæmu að lungun eru farin að hósta því upp!
Ekki veit ég hvar þið náið í þennan óþverra. Sturta sjálfur í mig öllu því eitri sem til mín flýtur, jarðgerðu sem kemisku og verð aldrei veikur.
Ég verð heima að vinna í því að leggja Völuspá á minnið útfrá Konungsbók.
Ég verð bara kúrandi við hlið Nóttu minnar.
Í Lundúnum að bíða eftir vél til Ástralíu. Haskar sér út í leigubíl
Við skötuhjúin verðum að slafra í okkur dýrindis mat hjá dýrindis fólki.
Í kvöld, ætla ég að stúdera hrútspung.
Ljómar upp
Í stól fyrir framan sjónvarpið. Þetta kallar maður að lifa á brúninni.
Ég laug. Ég sat í einstökum Volvo-sófa fyrir framan sjónvarp. Sófinn fær fimm stjörnur.
Ég verð í velmegun og lúxus í Danaveldinu góða.
Vjer verðum þar sem vjer verðum. Annað teljum vjer að sje algjörlega útilokað enda væri þá um að ræða gróf brot á mörgum náttúrulögmálum.
Í kvöld verð ég í fyrramálið. Starir þegjandi út í loftið
Í kvöld verð ég í fyrramálið. Starir þegjandi út í loftið
Er tímavélaþjófurinn að koma upp um sig?
Nei, tímabeltaþjófurinn, ekki tímavélar.