Jæja, nú fer jég að leggja af stað. Á bara eftir að brýna hornin og svo að hringja á skutlarann! Sjáumst fljótlega!
Fagnar ógurlega og opnar annan blút
Er þingið fáment?
Dálítið, enn sem komið er - en góðmennt er það, og við erum búin að panta nokkra leiguvini á staðinn til að fylla upp í eyður.
Bið að heilsa öllum sem ég þekki á Þarfaþinginu.
Og bið líka að heilsa þeim sem ég þekki ekki.
Bið líka að heilsa
Orðið er of seint að skila kveðjum, nema þeim er vjér skiluðum til Hæstvirkts Núma og Hæstvirkts Spesa frá Tinu St. Sebastian!
Var sem sagt farið á Players?
Og vjer biðjum líka að heilsa, sbr. umræður aðeins ofar. Sá/sú sem stal tímavjelinni er beðin(n) að koma kveðjunum til skila Strunsar vegna endalausra tímavjelarþjófnaða út af sviðinu og skellir á eftir sjer.
Var sem sagt farið á Players?
Eigi man ek þat svo gjörla en hitt veit ek þó að gestgjafinn bauð upp á ófá ópal skot. Sá þar óminnishegrinn um að stela geði guma.
Gestgjafi er ekki ábyrgur fyrir andlegum eða líkamlegum skaða sem kann að hafa hlotist af neyslu þeirra drykkja er boðið var upp á - sem vitaskuld var enginn hvort eð er. Góðar stundir.
Gestgjafi er ekki ábyrgur fyrir andlegum eða líkamlegum skaða sem kann að hafa hlotist af neyslu þeirra drykkja er boðið var upp á - sem vitaskuld var enginn hvort eð er. Góðar stundir.
Það þýðir ekkert að skorast undan ábyrgð núna þegar skaðin er skeður. En vertu rólegur nú er hægt að gera skaðabótasamninginn greiðslufrían fyrstu sjö árinn.
Ég ber sjálfur ábyrgð á þeim Ópal skotum, sem ég drakk. Enginn þvingaði mig til þess og ég ber því sjálfur fulla ábyrgð á afleiðingum gjörða minna, en þær einkenndust einkum af minnisleysi og almennu heilsuleysi næstu daga eftir Þarfaþingið.
Hafi ótæpileg Ópaldrykkja mín skaðað einhverja aðra, er ég tilbúinn að axla ábyrgð gagnvart þeim.
Senda má kröfur til mín í einkapósti.
...er ég tilbúinn að axla ábyrgð gagnvart þeim.
Bara ef fleiri væru nú eins og þú. Starir þegjandi út í loftið
Íhugar hvort Evróputilskipun 94/19/EC nái nokkuð yfir áfengisinnbyrðingu
Æi, ég missti af þessu. Var í sveit settur þetta kvöld... eða var ég í set sveittur?