Næstkomandi föstudag, þann 19. júní 2009, klukkan 20:00 GMT, verður þarfaþing sett. Þinghald verður með hefðbundnu sniði, utan einnar undantekningar: Smjörstrokkun verður ekki leyfð að þessu sinni. Af gefnu tilefni er tekið fram að sekkjapípuleikur er hins vegar leyfður í þetta skipti.
P.S. Ef Gestapó verður lokað þegar þennan dag ber upp, og einhverjar spurningar um þinghald vakna (eins og oft gerist á síðasta snúningi), má hafa samband við mig á Kaffi Blút.
Þetta líst mér vel á og reikna fastlega með að mæta. Ljómar upp
HEY, ÞARFI ER MEÐ TÍMAVÉLINA! NÆSTI FÖSTUDAGUR ER 19. JÚNÍ!
Andsk. er að djamma laugardag 20 júní.
Þýðir það að það er ekki hægt að djamma föstudaginn 19 júní ? Klórar sér rosalega ákaft í höfðinu
klórar sér rosalega ákaft annars staðar...
HEY, ÞARFI ER MEÐ TÍMAVÉLINA! NÆSTI FÖSTUDAGUR ER 19. JÚNÍ!
Hrökklast afturábak og hrasar við
Föstudagurinn 20. júní er árið 2008. Því er eina leiðin fyrir oss til að komast sú að komast aftur yfir tímavjelina en Þarfagreinir er greinilega með hana miðað við þessa tímasetningu Blótar herfilega og rífur hár sitt.
En hvernig ætli tímavjelin hafi lent hjá Þarfagreini ? Síðast er vjer vissum var Einn gamall en nettur með hana eftir að hafa stolið henni Klórar sjer í höfðinu.
Klórar sér í höfðinu
Þetta er föstudaginn 19. júní. Það stendur í upphafsinnlegginu. Það hefur alltaf staðið í upphafsinnlegginu. Ég kannast ekki við neina tímavél.
Stendur á upphafsinnlegginu
Andsk. er að djamma laugardag 20 júní.
Þýðir það að það er ekki hægt að djamma föstudaginn 19 júní ? Klórar sér rosalega ákaft í höfðinu
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið en klórar sér samt líka í höfuðið Úff, tvö kvöld í röð.
Ég geri ráð fyrir að mæta hvort sem það verður 19. eða 20. júní árið 2008 eða 2009.
Andsk. er að djamma laugardag 20 júní.
Þýðir það að það er ekki hægt að djamma föstudaginn 19 júní ? Klórar sér rosalega ákaft í höfðinu
Var Lopi ekki að benda á það að 20. júní er laugardagur?
Er nokkuð séns á að færa staðsetninguna örlítið sunnar ? Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Svona einsog 4000km...
Ha?
Þarfi sagðist ætla að hafa Þarfaþingið föstudag 20 júní.
Æi, andsk!"#$%
Kemst ekki.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Brestur í óstöðvandi grát
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Er nokkuð séns á að færa staðsetninguna örlítið sunnar ? Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Svona einsog 4000km...
Já, hittumst á Kanarí!