Hér á að senda inn tvíræðar fyrirsagnir sem hafa birst í blöðum - nú eða gætu birst það ef menn vilja flíka sköpunargáfunni
Ég byrja á tveimur raunverulegum:
Látnir sópa götur
Dagur á Akureyri um auknar vinnuskyldur slökkviliðsmanna sem þeim líkaði illa. Lesendur lásu margir annað úr þessu.
Englandsdrotting reið tengdadóttur sinni.
Klassíker úr Tímanum frá skandalíseringarárum Söru Ferguson (systur Alexar, dóttur Masseys). Þvi miður ofnotaður djókur í síðari tíð en kom þó vel út í Textavarpinu þegar Ingibjörg Sólrún sagði eitthvað umdeilt í miðju kennaraverkfalli: Kennaraforystan reið borgarstjóra.
Ég freistast stundum til að bera saman innlendar og erlendar fréttir á mbl.is og lesa þá seinni sem nokkurs konar undirfyrirsögn tengda þeirri fyrri. T.d:
Hárgreiðslustofur sektaðar vegna verðmerkinga - Talibanar hóta hefndum
Ríkisstjórnarfundi á Akureyri að ljúka - Vilja losna við kannabis-ferðamenn

Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Snillingur
Hér er ein sem byrtist á íþróttaféttasíðu:
Íslendingar höfðu tak á Eistum
Englandsdrotting reið tengdadóttur sinni.
Hlær eins og bjáni
Sigmar með lýsinguna í júróvision:
Það kostar bara 100 kall að hringja, sem er ekkert verð fyrir þennan pening.
Hann var að lýsa fyrir fólki hvernig það kysi í símakosningunni.
Priceless.
http://www.visir.is/article/20090506/FRETTIR01/347875574
Ákærð fyrir að sparka í höfuð á skemmtistað
Ég er viss um að skemmtistaðurinn hafi verið með einhvern dónaskap...
http://www.visir.is/article/20090506/FRETTIR01/347875574
Ákærð fyrir að sparka í höfuð á skemmtistað
Ég er viss um að skemmtistaðurinn hafi verið með einhvern dónaskap...
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Þessi skemmtistaður er einmitt frekar ömurlegur!
Ég man nú eftir fyrirsögninni Leoncie reið útvarpsstjóra. Spurning hvort Úbbi vilji tjá sig eitthvað frekar um það...
Annars tók ég líka eftir þessu hjá Sigmari. Ég treysti mér til að fullyrða hér og nú að þetta verður notað óspart á mínu heimili.
Eitt orð Hexia, falsmiðlar!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Eitt orð Hexia, falsmiðlar!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvað er þetta, þú varst bara fullur. Indverska prinsessan var með þig í vasanum.
Nú þegar hlutirnir eru ekki alveg eins og ráðamenn vilja hafa þá, þá er best að setja 'Lög um íslenskan veruleika' (http://www.visir.is/article/20090515/LIFID01/560507781
Og það er ekki frá því að maður fari til 'Til fundar við Draumalandið' vegna skorts á skemmtilegu innihaldi í þessari grein (http://www.visir.is/article/20090515/SKODANIR/898088673)
(hlekkur uppfærður svo lesendur endi á réttri síðu)

Þetta er reyndar svolítið út fyrir efnið. Hér er fjallað um skrýtnar fyrirsagnir en ekki tvíræðar. En við getum svo sem víkkað út dagskrána ef stemming er fyrir.
Hér á að senda inn tvíræðar fyrirsagnir sem hafa birst í blöðum - nú eða gætu birst það ef menn vilja flíka sköpunargáfunni.
Á núna að setja skrýtnar en ekki tvíræðar? Hvenær breyttist það?
Ég var að stinga upp á að við víkkuðum þessa umræðu út rétt áðan.
Teeeeeekinn!
Framkvæmir svipuhljóð og glottir eins og bavíani
Ég held að drottning mín og friðill hennar misskilji eitthvað. Þegar ég segi „hér er fjallað um“ vísa ég til innleggs Þrætubókar 8sem ég var að setja út á) en ekki til þess sem ég sagði í upphafsinnleggi mínu. Þetta má hverjum manni vera ljóst og því sýnt að það var Jarmi sem var tekinn.
Réttir Jarma vaselín
Meira, Jarmi?
Regína, þú ert ekki búin að skúra höllina.
Það er nú slæmt þegar þraetubókin er farin að valda þrætum fyrir tíunda innlegg - það var alls ekki ætlunin.
Ég ætlaði að reyna að bæta ráð mitt og koma með innlegg sem væri allt í senn fyndið, gáfulegt, hnittið en jafnframt smekklegt með mikla dýpt. En ég hætti við.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann