Kommúnistar hafa hrifsað til sín völdin á Íslandi með viðbjóðslegum lygum og áróðri. Löngu gjaldþrota hugmyndafræði ríður húsum og heimilum. Setjum litla manninn í öndvegið og stöndum vörð um heimilin. Það gerum við aðeins með því að koma kommúnistum frá völdum.
En mig langar ekkert til þess að vera í öndveginum.
Og hleypa Sjálfstæðisflokknum aftur að?
Hvað meinar þú eiginlega?
Offari og Golíat hvika aldrey!
Láttu ekki Afturhaldskommatittinn heyra í þér Arne...
Lausnin er einföld. Gerum Ástþór Magnússon að einvaldi og allir verða hamingjusamir!
Völd spilla. dæsir mæðulega og lítur inn um gluggann á Stjórnarráðinu
Anarkismi er augljóslega eina svarið. Allir passa sitt og á þriðjudögum eru slagsmál. Niðri á Austurvelli. Með bekkjarbáli. Og búsáhöldum. En engum löggum.
LIFI STJÓRNLEYSIÐ!
Lausnin er einföld. Gerum Ástþór Magnússon að einvaldi og allir verða hamingjusamir!
Ég styð þetta. Ribbit!
Hvað meinar þú eiginlega?
Offari og Golíat hvika aldrey!
Nákvæmlega!
Framsóknarmenn eru því miður ekki nógu staðfastir.
Sólheimaglottið birtist á vörum mér. Mér hefur sýnst að á síðustu árum hafi Framsóknarmenn verið staðfastari en steinirunnið tröll. Og það sem meira er að þeir skelltu upp varalit í tilraun til að sannfæra kjósendur um að þeir væru ekki steinirunni tröll.
Starir ringluð í kringum sig Maður rétt skreppur frá og ætlið þið bara að segja að það sé komin ný ríkisstjórn? Er ég þá ekki lengur kakómálaráðherra?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hvað eruð þið eiginlega að tala um ? Hér er aldrei kosið, menn bara hætta þegar þeir vilja og sá sem er fyrstur að sækja um fær djobbið. Ég sagði af mér sem forsætisráðherra um daginn, ég held að enginn sé búinn að sækja formlega um, kanski ég hrifsi það bara aftur til mín.