Já, hvernig hangir hann dag, hann Hlebbi? Hann hefur nú löngum þótt blautlegur.
Ætli hann hangi yfir höfuð á Hlebba? Finnst líklegra að hann lafi.
Nei, Tígra, ég er sannkallaður Ó-lafur! Gefur frá sér vellíðunarstunu
Setur apafóður í hundadallinn
Í framhaldi af áður óframkomnum upplýsingum kýs ég að tjá mig ekki frekar um meintan upplýsingaskort, eða vöntun á slíkum, vegna tengsla minna við málsaðila máls sem enn er í rannsókn hjá þar til bærum yfirvöldum vegna yfirvofandi vergrar landsframleiðslu landsmanna móðuharðindanna sem móðir og másandi mæða hvern mann með mæðiveiki umræðu um ráðandi ráðamenn ráðslags og ræðisskrifstofu ráðsmanna ræðisríkja.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Jæja, hann er væntanlega að snúa sér í norðrið eftir helgina.Þefar af sunnanáttinni með lokuð augu hallandi undir flatt
Almennt sjeð verður að teljast að frá almennu sjónarmiði hafi almennt lítið verið um að vera í þessum þræði þó allra síðustu daga hafi almennt heldur lifnað yfir honum, a.m.k. almennt sjeð.
Gaman að því hversu almennilegur almenningurinn er hér.
Almennt sjeð verður að telja að samkvæmt almennt viðurkenndum viðmiðum um almennar viðmiðanir almennra alhæfinga geti almennt sjeð ekki verið mögulegt að almennt sjeð fullyrða annað en að frá almennu sjónarmiði sje nokkuð langt síðan vjer höfum með almennum hætti tjáð oss um almenn mál í þeim almenna þræði er þetta almenna innlegg birtist almennt sjeð í.
Mér finnst Vlad vera frekar almennilegur