Jæja, velkomin - kæru gestir.
Hér fer fram kosningavaka, þar til yfir líkur. Hérna frami er blútur á kostnaðarverðiykkur að góðu.
Ekki er samt skilyrði að vera í glasi.
Nýjustu tölur munu fara hér innum annað eyrað og útum hitt. Við sjáum það hvortsem er allt á morgun, eða strax í fyrramálið.
(Sjálfur á ég eftir að vakna með lyklaborðið klístrað af kosningatárum.)
Hafið með ykkur góða skapið, eða, ef ekki vill betur til, kosningaangurværðina.
Ég er farinn út í sal. ....
MIkið andar hann Guðjón Arnar hátt.
Miklir pólitíkustar eiga að anda hátt. Mestu skiptir þó að þeir geri það ekki ofan í hálsmálið á okkur venjulega fólkinu.
Bíddu bíddu, hvað er að gerast, nýjar tölur?
Hristir töluboxið
Pant fá tölur úr þurrkuðum banönum.
Hvar eru allir dræverarnir?
MIkið andar hann Guðjón Arnar hátt.
Leitar andanna á Gestapó
Mikið er ég ánægður að pólitíkinni verður haldið hér. Einhverstaðar verða vondir að vera og þetta er fínn staður.
En jæja, eigum við að reyna að finna út úrslitin fyrst allra?
Ég held að það orð sem best kemur út úr B D F O P S V verður það sem sigrar!
En með eingöngu einum sérhljóða þá held ég að við getum verið nokkuð viss um að O kemst í ríkisstjórn.
SPVOD?
Auðir seðlar eiga það víst allir sammerkt:
enginn finnst þar útstrikaður,
enginn fellur listamaður.
VSOP í mitt glas.
Ég skal taka VSO í mitt glas, Ástþóri er bara ekki boðið.
Hver á þá að koma með tómatsósuna?
Hva, er Ástþór eitthvað verri ef hann er í glasi? Starir þegjandi út í loftið
Vjer þiggjum VSO ásamt bílastæðismerki Ljómar upp.
Okkur vantar alveg regnboga sem kemur uppúr gólfinu. Og gamalt spendýr með grátt hár.
Homo Sapiens telst reyndar til spendýra. Og Jóhanna er með grátt hár.
Dregur uppstoppaðan varúlf fram á gólfið Hohoho, nú verður gaman.
Svo vantar líka einhverja til að dansa klukkudansinn, og að hella bjór á gólfið, svo að það sé skemmtilegra að tvista.