— GESTAPÓ —
Vil bara minna á námskeiðið
» Gestapó   » Efst á baugi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/3/09 16:06

Agile verkefnastjórnun með Scrum

Á námskeiðinu verður gefið yfirlit yfir helstu aðferðir innan Agile, sérstök áhersla verður lögð á Scrum aðferðafræðina sem hefur náð töluverðum vinsældum síðustu ár. Þar verður fjallað um helstu hugtök, hlutverk og uppbyggingu aðferðafræðinnar og tengsl hennar við skipulag fyrirtækja í dag. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum og æfingum í hópum.

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 23/3/09 18:50

Má velja með hverjum maður er í hóp?

Er hægt að fá afslátt?

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 23/3/09 18:53

Merkilegt nokk þá vinn ég eftir þessu scrumkerfi núorðið.

Ég er scrumari, og stoltur af því. ‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 23/3/09 20:47

Ég átta mig á því núna að þetta er einhvers konar Dale-Carnegie dæmi. Ég sem hafði alltaf lagt allt aðra merkingu í nafn Scabba.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 23/3/09 20:48

Kemur fram á námskeiðinu hvort einhver munur er á skrumi og scrumi ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 31/3/09 18:40

Því miður, þeir sem borga ekki námskeiðagjöldin, fá engin kennslugögn... ‹Glottir eins og fífl›

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 31/3/09 19:04

Hvað kostar? Má borga í ákavíti?

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 31/3/09 19:05

‹Íhugar það alvarlega í nokkrar sekúndur› hmm... er venjan að borga í einhverju öðru ‹Klórar sér í höfðinu›

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 25/4/09 21:37

Rjett í þessu heyrðum vjer kvartað yfir alvarlegum skrumskorti í kosningabaráttu. Leggjum vjer því formlega til að skrumnámskeiðum verði fjölgað stórlega því þetta er augljóslega mjög alvarlegt vandamál.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: