Málfari Sigmundar Ernis fer óðum hnignandi. Á þingi um daginn spurði hann "Hvað væntir þjóðin af okkur?" Eða var það ekki svoleiðis?
"Hvers á þjóðin skilið?" sagði hann.
fær hroll
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/06/16/oasaettanleg_framkoma_forsetans/
Þá sló Ásta ótæpilega oft á bjöllu sína og rak þingmanninum úr ræðustól.
Sumarstarfsfólk falsmiðlanna enn á ferð:
http://www.visir.is/article/20090708/FRETTIR01/585935489
Og er þessi klausa þá sérstaklega slæm:
Tankarnir, sem hver um sig vegur 33 tonn, hafa og verða hífðir niður í stóran flutningapramma, sem dráttarbátur kom með frá Noregi, og mun báturinn svo draga prammann til Vopnafjarðar , með tankana uppi standandi en hæðin á þeim er álíka og á átta hæða íbúðablokk.
Hlutir eru ekki hífðir niður!
Þeir eru látnir síga niður!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/07/20/fujimori_daemdur_i_7_5_ars_fangelsi_fyrir_spillingu/
Fujimori dæmdur í 7,5 árs fangelsi fyrir spillingu
Hvað eru þá 7,4 ár langur tími.
Hnussar
Þetta eru blábjánar allt saman... Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
http://eyjan.is/blog/2009/07/21/japanskt-potter-fan-i-trans/
Japanskt Harry Potter “fan” í trans
Sjá þetta... Hnussar fyrirlitlega
Svo getur hálfbjáninn ekki einu sinni skrifað nafn leikarans rétt...
Hér er fundur hennar með Daniel Dadcliffe.
Fyllist heilagri vandlætingu, strunsar út og skellir öllu á eftir sér
http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/07/20/fujimori_daemdur_i_7_5_ars_fangelsi_fyrir_spillingu/
Fujimori dæmdur í 7,5 árs fangelsi fyrir spillingu
Hvað eru þá 7,4 ár langur tími.
Hnussar
Þetta eru blábjánar allt saman... Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Fyrir utan að hann var dæmdur í sjö og hálfs ára fangelsi.
Fyrir utan að hann var dæmdur í sjö og hálfs ára fangelsi.
Það fer ekki saman við mína máltilfinningu. Ég segi sjö og hálfs árs. Væntanlega vegna þess að ég lít svo á að það sem er innan hornklofa í eftirfarandi setningu sé undanskilið: Hann var dæmdur í sjö [ára] á hálfs árs fangelsi.
Ég myndi líka segja að barn væri tveggja og hálfs árs.
Með þessu er ég ekki að segja að það sé rangt að orða þetta eins go Hvussi. Þó held ég að það sem ég hef vanist styðjist við langa hefð í málinu og leyfi mér að kalla það rétt.
Hitt getum við væntanlega öll sammælst um að tugabrot henti illa til að fjalla um hluta úr ári hvort sem það er helmingur eða annað.
Kannski hef ég látið enska máltilfinningu rugla mig. Segja þeir ekki annars seven and a half years?
Ég hygg að svo sé.
Við segjum líka 21 árs, o.s.frv.
Við segjum líka 21 árs, o.s.frv.
Það er alveg rétt hjá þér. hefur rangt fyrir sér og borar tá í gólf
Það sem fór sérstaklega í mínar fínustu, var að ritsóðinn skyldi nota tugabrot í fyrirsögninni. Það ætti að húðstrýkja kvikindið.
Sadisti geturðu verið, Pó. Ég myndi láta augað nægja.
Bæklingur frá ELKO:
Keyptu nýjan síma og þú átt möguleika á vinningi
Þetta þykir mér álíka vont og að segja Hleyptu nú út í búð og keyptu mjólk og smjör.
Hleyptu nú [hestinum á skeið] út í búð fyrir mig. Þetta er bara fínt er það ekki?
Hleyptu nú [hestinum á skeið] út í búð fyrir mig. Þetta er bara fínt er það ekki?
Bara ef hornklofaorðin eru með.
Ég veit alveg hvað er að hleypa, en hvað er að keypa?