— GESTAPÓ —
Ambögu- og málvillusafn B. Ewings.
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krossgata 12/6/09 10:53

Úr http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/06/12/travolta_stadfesti_einhverfu_sonar_sins/ :

Tilvitnun:

Þau eru meðlimir í Vísundakirkjunni sem viðurkennir ekki tilvist einhverfu eða annarra geðsjúkdóma.

Kvenskörungur forsetaembættisins. Hlerari við HB. Sporrekjandi ríkisins. Tilnefnd: Mesti laumupúkinn 2007 Gul ‹Drepur tímann› Ef þú getur lesið þetta ertu of nálægt. Laumuhluti: ÞráðurINN fundinn! 10. feb.. og annar 4. maí
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 12/6/09 23:36

Þessa gullvægu málgrein má lesa í frétt á Vísi: Árásin átti sér stað í ágúst árið 2002. Þá var stúlkan að reka kúna en hún var nýbúin að bera kálfinn.

Hvort ætli það hafi verið stúlkan eða beljan, sem bar kálfinn og hvert var hann borinn?

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 13/6/09 00:00

Já, eða eins og barnið sagði þegar það sá nýbornu hryssuna í sveitinni: Nei sko! Hesturinn er búinn að fæða!

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 13/6/09 20:26

krossgata mælti:

Úr http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/06/12/travolta_stadfesti_einhverfu_sonar_sins/ :

Tilvitnun:

Þau eru meðlimir í Vísundakirkjunni sem viðurkennir ekki tilvist einhverfu eða annarra geðsjúkdóma.

Enda eru þeir nú hálfgerðir vísundar. A.m.k. ristir hjarðeðlið djúpt.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 14/6/09 18:03

hlewagastiR mælti:

Já, eða eins og barnið sagði þegar það sá nýbornu hryssuna í sveitinni: Nei sko! Hesturinn er búinn að fæða!

Ertu að grínast? Þú meinar auðvitað „nýköstuðu“.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 14/6/09 18:04

Hér er viðtal við Kristjönu.

"Ég vill alltaf standa mig vel"

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 14/6/09 19:07

Regína mælti:

hlewagastiR mælti:

Já, eða eins og barnið sagði þegar það sá nýbornu hryssuna í sveitinni: Nei sko! Hesturinn er búinn að fæða!

Ertu að grínast? Þú meinar auðvitað „nýköstuðu“.

Að sjálfsögðu. Var bara að athuga hvort einhver myndi fatta þetta. ‹Starir þegjandi út í loftið›

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 15/6/09 20:42

http://visir.is/article/20090614/FRETTIR02/71033445

"McCann hjónin óttast að þessi maður geti upplýst um leyndarmálið á bak við hvarf dóttur þeirra áður en hann fer í gröfina."

Vilja þau semsagt ekki finna hana?

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 15/6/09 22:27

Gunnlaugur Jónsson var rétt í þessu sagður þjálfari Selfossar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 15/6/09 22:31

Wayne Gretzky mælti:

Gunnlaugur Jónsson var rétt í þessu sagður þjálfari Selfossar.

... og þegar hann hættir þar fer hann sjálfsagt til Akranesar ...

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 15/6/09 23:17

Allir vita að rétt eignarfall af Selfossi er Selfosss.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 15/6/09 23:19

Regína mælti:

Wayne Gretzky mælti:

Gunnlaugur Jónsson var rétt í þessu sagður þjálfari Selfossar.

... og þegar hann hættir þar fer hann sjálfsagt til Akranesar ...

‹hristir hausinn› Eitt sinn heyrði ég þáverandi herbergisfélaga minn tala við félaga sinn um að fara til Akranesar.

Það held ég nú!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 16/6/09 09:34

Kargur mælti:

Regína mælti:

Wayne Gretzky mælti:

Gunnlaugur Jónsson var rétt í þessu sagður þjálfari Selfossar.

... og þegar hann hættir þar fer hann sjálfsagt til Akranesar ...

‹hristir hausinn› Eitt sinn heyrði hér þáverandi herbergisfélaga minn tala við félaga sinn um að fara til Akranesar.

‹veltir því fyrir sér hvort Kargur sé að hrista hausinn yfir málfari herbergisfélagans, eða því að hann skyldi ætla að fara á Akranes›

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 16/6/09 09:48

Sagaði kýr í stykki með vélsög.

Það er engin málvilla í þessari frétt svosem, en í fréttinni má sá að það var bara ein kýr sem fékk þessa meðferð, ekki margar.
Sagaði kú sumsé ...

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krossgata 16/6/09 09:55

http://bylgjan.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=45894 5:28

Sigmundur Ernir í símaviðtali: „... fólk sem er að koma undir sig þaki...“

Kvenskörungur forsetaembættisins. Hlerari við HB. Sporrekjandi ríkisins. Tilnefnd: Mesti laumupúkinn 2007 Gul ‹Drepur tímann› Ef þú getur lesið þetta ertu of nálægt. Laumuhluti: ÞráðurINN fundinn! 10. feb.. og annar 4. maí
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 16/6/09 10:55

Málfari Sigmundar Ernis fer óðum hnignandi. Á þingi um daginn spurði hann "Hvað væntir þjóðin af okkur?" Eða var það ekki svoleiðis?

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 16/6/09 11:05

hvurslags mælti:

Málfari Sigmundar Ernis fer óðum hnignandi. Á þingi um daginn spurði hann "Hvað væntir þjóðin af okkur?" Eða var það ekki svoleiðis?

"Hvers á þjóðin skilið?" sagði hann.

        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: