Vjer, Vladimir Vasilievich Fuckov, kunngjörum með innleggi þessu áform um skiptingu Baggalútíu í tvö algjörlega sjálfstæð ríki, Baggalútíu og Bankalútíu. Þetta er þó með þeim fyrirvara að eigi komi fram mótbárur.
Baggalútía verður alveg eins og núverandi Baggalútía og þar verða engar breytingar. Bankalútía verður hinsvegar örsmátt ríki (líklega um 100x100 metrar) þar sem eingöngu verður bankastarfsemi og svipuð starfsemi. Þar verður algjör bankaleynd, engir skattar og öllum íbúum Baggalútíu heimilt að geyma þar peninga, aðsetur fyrirtækja, hlutafjelaga, einkahlutafjelaga, eignarhaldsfjelaga o.s.frv. Þó er frá þessu ein undantekning, þeir íbúar sem eigi eru ráðherrar eða háttsettir embættismenn mega þetta ekki.
Ljómar upp og stofnar 500 eignarhaldsfjelög (E-1 til E-500) til að halda utan um eignarhaldsfjelag um eignarhaldsfjelag um eignarhaldsfjelög A, B, C og D sem halda utan um kóbaltbirgðir forsetaembættis Baggalútíu þar sem eignarhaldsfjelag D sjer jafnframt um að halda utan um E-1 til E-250 en A heldur utan um E-251 til E-500 sem svo sjer um endurskoðun hjá B og C og þeim fjelögum er þeim tengjast.
Vandamálaráðherra sér engin vandamál sem standa í vegi þessarar tillögu. Ég á fullmikið af óhreinum fjármunum sem ég þarf að koma einhverstaðar fyrir...
Stofnar banka í Bankalútíu með mikilli leynd.
Laumbankinn er bankinn þinn. Streymi hurðarfals gætir fjárins.
Stofnar eignarhaldsfélagið Kakó & Kóbalt sem heldur utan um eignir og eignatengsl Leyniefnis Group. Kaupir síðan lítinn pylsuvagn í nafni dótturfélagsins (Sleifin) og yfirfærir allar skuldir Kakós & Kóbalts á pylsuvagninn
Við verðum bara að passa okkur að þetta verði ekki Blankalútía!
Stofnar Sívertsen Group og selur það Ívar Holdings sem færir hlutinn yfir í Í.Sívertsen Eignarhald sem svo sameinast Ívar S. Fjárfestingarfélagi sem leggur sjálft sig niður viðyfirtöku ÍbbiSíbb Properties á öllu hlutafénu sem síðan rennur inn í Einbjörn ehf sem gerir bindandi kauptilboð í Tvíbjörn ltd sem sameinast Þríbirni inc sem svo er skipt niður í Fjórbjörn oy, Fimmbjörn bv og Sexbjörn sf. Við þessa uppskiptingu eignast Sívertsen Ívar Holdings allt hlutafé þeirra og stofnar um það Eignarhaldsfélagið Sívertsenssetrið. Undir því má svo finna ÍS1 - ÍS100 sem er með óstöðvandi hringrás eignarhaldsflutnings í sjálfum sér þannig að þau eiga öll í öllum nema sjálfum sér á ákveðnum tímapunkti en þó ekki alltaf. Við þetta er svo stofnað fjárstreymisfyrirtækið Sívertsen Finances og það látið stýra hringrásinni. Til mótvægis eru stofnuð félögin SÍ1 - SÍ100 þar sem eignarhald færist handahófskennt á milli félaga án reglu og því er aldrei hægt að vita hvaða félag á hvað og þá hvenær. Enn fremur skal stofnað innheimtufélagið Veski sem sér um að ná sem mestu út úr öðrum félögum og flytja arðinn inn á leynilegasta reikninginn í Bankalútíu. Að lokum setur hann þetta allt saman á hausinn nema Veski og hefur allt ferlið upp á nýtt nema hvað í þetta sinn bætast stafirnir A1 fyrir framan öll nöfn
Það er með öllu ósatt að eftirfarandi hafi gerst rjett í þessu:
Grípur um kvið sjer, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Stofnar eignarhaldsfélagið Kakó & Kóbalt sem heldur utan um eignir og eignatengsl Leyniefnis Group. Kaupir síðan lítinn pylsuvagn í nafni dótturfélagsins (Sleifin) og yfirfærir allar skuldir Kakós & Kóbalts á pylsuvagninn
Lánar sjálfum sjer 1.000.000.000 böggur sem fengnar eru út á gríðarlega háa viðskiptavild (99% af eignunum) E-100 til E-199, stofnar síðan KK1-KK100 sem hvert um sig kaupir 0.1% hlut (alls 10%) í Kakó & Kóbalt og býður Hexiu í framhaldi af því að kaupa hlutabrjef í E-1 til E-100 á hagstæðum kjörum og að nota þau (ókeyptu) hlutabrjef sem veð þegar kaupin fara fram
verður alveg ringlaður
Hérna, hvað varð um það sem ég átti í Sívertsen Finances? sér ævisparnaðinn sinn hverfa til Cayman-eyja
telst ég hafa nógu góð embætti til að geta notað þessa Bankalútíu?
telst ég hafa nógu góð embætti til að geta notað þessa Bankalútíu?
Ekki fyrst þú segist vera nánast óþægilega kurteis. Maður verður víst að vera jafn harðbrjósta og hranalegur og myrkrahöfðinginn til að komast upp með svonalagað.
Það var nú ekki ég sem sagði þetta heldur Skabbi þegar umræður stóðu um fjölgun friðargæsluliða.
Það var nú ekki ég sem sagði þetta heldur Skabbi þegar umræður stóðu um fjölgun friðargæsluliða.
Nú þá er þetta allt í lagi. Málið er bara að láta aðra halda að þú sért kurteis og síðan gleypirðu af þeim höndina þegar þeir rétta þér litlafingur. sækir um stöðu kennara við Banka-fræði 101
Það er með öllu ósatt að eftirfarandi hafi gerst rjett í þessu:
Grípur um kvið sjer, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Stofnar eignarhaldsfélagið Kakó & Kóbalt sem heldur utan um eignir og eignatengsl Leyniefnis Group. Kaupir síðan lítinn pylsuvagn í nafni dótturfélagsins (Sleifin) og yfirfærir allar skuldir Kakós & Kóbalts á pylsuvagninn
Lánar sjálfum sjer 1.000.000.000 böggur sem fengnar eru út á gríðarlega háa viðskiptavild (99% af eignunum) E-100 til E-199, stofnar síðan KK1-KK100 sem hvert um sig kaupir 0.1% hlut (alls 10%) í Kakó & Kóbalt og býður Hexiu í framhaldi af því að kaupa hlutabrjef í E-1 til E-100 á hagstæðum kjörum og að nota þau (ókeyptu) hlutabrjef sem veð þegar kaupin fara fram
gerir yfirtökutilboð í allt saman á genginu -50, leggur fram veð í magaverk og býður hlutabréfin til sölu á genginu 23942
Hó hó, Nýja FME, hérna. Gjöra svo vel að skila þessum banka og snautiði burt, eða læt norskfrönsku kellínguna lemja ykkur.
Ég tek nú bara kjellinguna með mér í vænan reiðtúr. Það ætti að þagga niðri í henni næstu árin að minnsta kosti.
Hó hó, Nýja FME, hérna. Gjöra svo vel að skila þessum banka og snautiði burt, eða læt norskfrönsku kellínguna lemja ykkur.
Yfirtekur Nýja FME (NFME) og leggur það niður og stofnar um það félögin NFME1 - NFME100. Kemst svo að því að NFME gæti líka þýtt Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum og fagnar gríðarlega yfir villandi nafni félaganna.
Ég tek nú bara kjellinguna með mér í vænan reiðtúr. Það ætti að þagga niðri í henni næstu árin að minnsta kosti.
Leggur niður kjellinguna og stofnar félögin Tsjelling og Kerling og flytur eignarhald á milli þeirra með hamstri
Það var nú ekki ég sem sagði þetta heldur Skabbi þegar umræður stóðu um fjölgun friðargæsluliða.
Nú þá er þetta allt í lagi. Málið er bara að láta aðra halda að þú sért kurteis og síðan gleypirðu af þeim höndina þegar þeir rétta þér litlafingur. sækir um stöðu kennara við Banka-fræði 101
Yfirtekur Háskóla Bankalútíu og stofnar félagið menntun sem opnar sameignarfélagið skóli og hefur kennslu undir nýrri kennitölu sem tileinkuð er nafninu Heimska ehf. Ræður hvurslags til kennslu
Selur hlut í Bagg ehf til alú sf með hlutabréfum í tur hf.