— GESTAPÓ —
Tilkynning um skiptingu Baggalútíu í tvö ríki
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 10/3/09 18:31

Vjer, Vladimir Vasilievich Fuckov, kunngjörum með innleggi þessu áform um skiptingu Baggalútíu í tvö algjörlega sjálfstæð ríki, Baggalútíu og Bankalútíu. Þetta er þó með þeim fyrirvara að eigi komi fram mótbárur.

Baggalútía verður alveg eins og núverandi Baggalútía og þar verða engar breytingar. Bankalútía verður hinsvegar örsmátt ríki (líklega um 100x100 metrar) þar sem eingöngu verður bankastarfsemi og svipuð starfsemi. Þar verður algjör bankaleynd, engir skattar og öllum íbúum Baggalútíu heimilt að geyma þar peninga, aðsetur fyrirtækja, hlutafjelaga, einkahlutafjelaga, eignarhaldsfjelaga o.s.frv. Þó er frá þessu ein undantekning, þeir íbúar sem eigi eru ráðherrar eða háttsettir embættismenn mega þetta ekki.

‹Ljómar upp og stofnar 500 eignarhaldsfjelög (E-1 til E-500) til að halda utan um eignarhaldsfjelag um eignarhaldsfjelag um eignarhaldsfjelög A, B, C og D sem halda utan um kóbaltbirgðir forsetaembættis Baggalútíu þar sem eignarhaldsfjelag D sjer jafnframt um að halda utan um E-1 til E-250 en A heldur utan um E-251 til E-500 sem svo sjer um endurskoðun hjá B og C og þeim fjelögum er þeim tengjast›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Goggurinn 10/3/09 22:37

Vandamálaráðherra sér engin vandamál sem standa í vegi þessarar tillögu. Ég á fullmikið af óhreinum fjármunum sem ég þarf að koma einhverstaðar fyrir...

Goggurinn. Vandamálaráðherra Heimsveldisins og varaforsetaherra. Sendiherra Páskaeyju. Staðfestur og rykfallinn erkilaumupúki. Stoltur eigandi eigin sálar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 10/3/09 22:40

‹Stofnar banka í Bankalútíu með mikilli leynd.›

Tilvitnun:

Laumbankinn er bankinn þinn. Streymi hurðarfals gætir fjárins.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 10/3/09 23:15

‹Stofnar eignarhaldsfélagið Kakó & Kóbalt sem heldur utan um eignir og eignatengsl Leyniefnis Group. Kaupir síðan lítinn pylsuvagn í nafni dótturfélagsins (Sleifin) og yfirfærir allar skuldir Kakós & Kóbalts á pylsuvagninn›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/3/09 00:32

Við verðum bara að passa okkur að þetta verði ekki Blankalútía!

‹Stofnar Sívertsen Group og selur það Ívar Holdings sem færir hlutinn yfir í Í.Sívertsen Eignarhald sem svo sameinast Ívar S. Fjárfestingarfélagi sem leggur sjálft sig niður viðyfirtöku ÍbbiSíbb Properties á öllu hlutafénu sem síðan rennur inn í Einbjörn ehf sem gerir bindandi kauptilboð í Tvíbjörn ltd sem sameinast Þríbirni inc sem svo er skipt niður í Fjórbjörn oy, Fimmbjörn bv og Sexbjörn sf. Við þessa uppskiptingu eignast Sívertsen Ívar Holdings allt hlutafé þeirra og stofnar um það Eignarhaldsfélagið Sívertsenssetrið. Undir því má svo finna ÍS1 - ÍS100 sem er með óstöðvandi hringrás eignarhaldsflutnings í sjálfum sér þannig að þau eiga öll í öllum nema sjálfum sér á ákveðnum tímapunkti en þó ekki alltaf. Við þetta er svo stofnað fjárstreymisfyrirtækið Sívertsen Finances og það látið stýra hringrásinni. Til mótvægis eru stofnuð félögin SÍ1 - SÍ100 þar sem eignarhald færist handahófskennt á milli félaga án reglu og því er aldrei hægt að vita hvaða félag á hvað og þá hvenær. Enn fremur skal stofnað innheimtufélagið Veski sem sér um að ná sem mestu út úr öðrum félögum og flytja arðinn inn á leynilegasta reikninginn í Bankalútíu. Að lokum setur hann þetta allt saman á hausinn nema Veski og hefur allt ferlið upp á nýtt nema hvað í þetta sinn bætast stafirnir A1 fyrir framan öll nöfn›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 11/3/09 00:50

Það er með öllu ósatt að eftirfarandi hafi gerst rjett í þessu:

‹Grípur um kvið sjer, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri›

Hexia de Trix mælti:

‹Stofnar eignarhaldsfélagið Kakó & Kóbalt sem heldur utan um eignir og eignatengsl Leyniefnis Group. Kaupir síðan lítinn pylsuvagn í nafni dótturfélagsins (Sleifin) og yfirfærir allar skuldir Kakós & Kóbalts á pylsuvagninn›

‹Lánar sjálfum sjer 1.000.000.000 böggur sem fengnar eru út á gríðarlega háa viðskiptavild (99% af eignunum) E-100 til E-199, stofnar síðan KK1-KK100 sem hvert um sig kaupir 0.1% hlut (alls 10%) í Kakó & Kóbalt og býður Hexiu í framhaldi af því að kaupa hlutabrjef í E-1 til E-100 á hagstæðum kjörum og að nota þau (ókeyptu) hlutabrjef sem veð þegar kaupin fara fram›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 11/3/09 00:55

‹verður alveg ringlaður›

Hérna, hvað varð um það sem ég átti í Sívertsen Finances? ‹sér ævisparnaðinn sinn hverfa til Cayman-eyja›

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 11/3/09 01:02

telst ég hafa nógu góð embætti til að geta notað þessa Bankalútíu?

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 11/3/09 01:05

Upprifinn mælti:

telst ég hafa nógu góð embætti til að geta notað þessa Bankalútíu?

Ekki fyrst þú segist vera nánast óþægilega kurteis. Maður verður víst að vera jafn harðbrjósta og hranalegur og myrkrahöfðinginn til að komast upp með svonalagað.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 11/3/09 01:06

Það var nú ekki ég sem sagði þetta heldur Skabbi þegar umræður stóðu um fjölgun friðargæsluliða.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 11/3/09 01:10

Upprifinn mælti:

Það var nú ekki ég sem sagði þetta heldur Skabbi þegar umræður stóðu um fjölgun friðargæsluliða.

Nú þá er þetta allt í lagi. Málið er bara að láta aðra halda að þú sért kurteis og síðan gleypirðu af þeim höndina þegar þeir rétta þér litlafingur. ‹sækir um stöðu kennara við Banka-fræði 101›

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/3/09 01:22

Vladimir Fuckov mælti:

Það er með öllu ósatt að eftirfarandi hafi gerst rjett í þessu:

‹Grípur um kvið sjer, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri›

Hexia de Trix mælti:

‹Stofnar eignarhaldsfélagið Kakó & Kóbalt sem heldur utan um eignir og eignatengsl Leyniefnis Group. Kaupir síðan lítinn pylsuvagn í nafni dótturfélagsins (Sleifin) og yfirfærir allar skuldir Kakós & Kóbalts á pylsuvagninn›

‹Lánar sjálfum sjer 1.000.000.000 böggur sem fengnar eru út á gríðarlega háa viðskiptavild (99% af eignunum) E-100 til E-199, stofnar síðan KK1-KK100 sem hvert um sig kaupir 0.1% hlut (alls 10%) í Kakó & Kóbalt og býður Hexiu í framhaldi af því að kaupa hlutabrjef í E-1 til E-100 á hagstæðum kjörum og að nota þau (ókeyptu) hlutabrjef sem veð þegar kaupin fara fram›

‹gerir yfirtökutilboð í allt saman á genginu -50, leggur fram veð í magaverk og býður hlutabréfin til sölu á genginu 23942›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 11/3/09 09:05

Hó hó, Nýja FME, hérna. Gjöra svo vel að skila þessum banka og snautiði burt, eða læt norskfrönsku kellínguna lemja ykkur.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Texi Everto 11/3/09 13:23

Ég tek nú bara kjellinguna með mér í vænan reiðtúr. Það ætti að þagga niðri í henni næstu árin að minnsta kosti.

• Þetta innlegg á sér ekki endilega stoð í Gestapóleikanum • Söngmaður sólarlagsins og áhangandi ljósaskiptanna • Fjalldrottning Baggalútíu • Riddaralið • Texi Everto treve ixet • Áttavillingur • Vonbiðill Geitarinnar • Matætan frá Mývatni
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/3/09 16:46

hlewagastiR mælti:

Hó hó, Nýja FME, hérna. Gjöra svo vel að skila þessum banka og snautiði burt, eða læt norskfrönsku kellínguna lemja ykkur.

‹Yfirtekur Nýja FME (NFME) og leggur það niður og stofnar um það félögin NFME1 - NFME100. Kemst svo að því að NFME gæti líka þýtt Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum og fagnar gríðarlega yfir villandi nafni félaganna.›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/3/09 17:09

Texi Everto mælti:

Ég tek nú bara kjellinguna með mér í vænan reiðtúr. Það ætti að þagga niðri í henni næstu árin að minnsta kosti.

‹Leggur niður kjellinguna og stofnar félögin Tsjelling og Kerling og flytur eignarhald á milli þeirra með hamstri›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/3/09 17:11

hvurslags mælti:

Upprifinn mælti:

Það var nú ekki ég sem sagði þetta heldur Skabbi þegar umræður stóðu um fjölgun friðargæsluliða.

Nú þá er þetta allt í lagi. Málið er bara að láta aðra halda að þú sért kurteis og síðan gleypirðu af þeim höndina þegar þeir rétta þér litlafingur. ‹sækir um stöðu kennara við Banka-fræði 101›

‹Yfirtekur Háskóla Bankalútíu og stofnar félagið menntun sem opnar sameignarfélagið skóli og hefur kennslu undir nýrri kennitölu sem tileinkuð er nafninu Heimska ehf. Ræður hvurslags til kennslu›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 12/3/09 00:49

‹Selur hlut í Bagg ehf til alú sf með hlutabréfum í tur hf.›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
     1, 2, 3  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: