Kvenfólk æfir ljúfa leiki,
listir þeirra herða.
Einhvers staðar eru á kreiki
afrit fundargerða.
---
Syngur bragi sína glaður
sá, sem yrkir líka.
Syngur bragi sína glaður
sá, sem yrkir líka.
Syngi þannig sérhver maður
sómabraginn ríka.
Sigríður með svuntuna
sífellt var að djóka
Sigríður með svuntuna
sífellt var að djóka.
Með þökkum þáði truntuna
þetta máttu bóka.
Fríðu gef ég frábært lof
fínan bruggar landa.
_____________________________________________________________________________________
* [ ÁBENDING ]
Hæhó; ef vel er aðgáð, má sjá að hér eru stuðlarnir of framarlega í línunni (í 1. & 2. kveðu).
Heppilegra hefði e.t.v. verið e-ð á borð við t.d. þetta:
Telpan þáði truntuna,
án tafar má það bóka.
- m/vinsemd - z n ó j -
_____________________________________________________________________________________
Fríðu gef ég frábært lof
fínan bruggar landa.
Í bílskúr út við ættarhof
ætla ég hann að blanda.
Ef ég verð af risnu ríkur
raka ég saman binginn
Ef ég verð af risnu ríkur
raka ég saman binginn.
Ek ég síðan, engum líkur,
allan landsins hringinn.
---
Ólafur fór ofsaglaður
upp í menntaskólann.
Ólafur fór ofsaglaður
upp í menntaskólann.
Hljóp þangað sá heiðursmaður
svo hratt að skein í sólann.
Heyrt ég þetta hef af Jóni
að hann sé eitthvað verri.
Heyrt ég þetta hef af Jóni
að hann sé eitthvað verri.
Fíflið vildi flýja af fróni
finnlands til með Sverri
Stóran vil og stinnan barm
og stefni aðeins neðar
Stóran vil og stinnan barm
og stefni aðeins neðar.
Auðveldlega flytja farm
feiknastórir sleðar.
Úr nærbuxunum Nína P.
naumlega sér vippaði.
Úr nærbuxunum Nína P.
naumlega sér vippaði.
Rétt á meðan Einsi E
eins og djöfull flippaði.
---
Upp í rúmið rennum okkur,
reynum ekki' að bíða!
Upp í rúmið rennum okkur,
reynum ekki' að bíða!
Úti syngur fuglaflokkur,
frjálst um húmið blíða.
Svo myndarleg ertu í mussunni,
mærin fegurst sprunda.
Svo myndarleg ertu í mussunni,
mærin fegurst sprunda.
Að hrossafluguhlussunni
með herópum ég skunda!
Þykkar varir, þrýstin öll,
þú mig ákaft gleður.
Þykkar varir, þrýstin öll,
þú mig ákaft gleður.
Ástin flytur ætíð fjöll
óháð því, sem skeður.
---
Ó, mér finnst svo unaðsgott
iðju þessa' að stunda:
(Passa stuðla í þriðja braglið)
Ó, mér finnst svo unaðsgott
iðju þessa' að stunda:
Saltað vatn að setja í pott
og sjóða nokkra lunda.
Ráð er nú að rekja mál
um rúmfræðinnar veggöng:
Ó, mér finnst svo unaðsgott
iðju þessa' að stunda:
Að sitja einn með græðgisglott
og góma feitan lunda.
Ráð er nú að rekja mál
um rúmfræðinnar veggöng:
Orð um fræðin há og hál
hefi ekki ég löng.
Gerðarleg og lendaprúð
er Lovísa frá Hofi.
Gerðarleg og lendaprúð
er Lovísa frá Hofi.
Hjónabandsins heimskuskrúð
held ég fáir lofi.
Býð ég þér nú bitlinginn
ef bak mitt viltu strjúka.
Býð ég þér nú bitlinginn
ef bak mitt viltu strjúka.
Réttu mér svo ritlinginn
rímu skal nú ljúka.
Nú skal heldur herða
hjartans góða slátt.
Nú skal heldur herða
hjartans góða slátt.
Grátt nú dómur gerða
guma leikur brátt.
---
Ég sendi núna nýjan pökk
í næturpósti
Ég sendi núna nýjan pökk
í næturpósti;
Nælonsokka og nagalökk
(með nokkrum þjósti).
Vertu ekki alltof hissa
eina hef ég löngun sjúka