Þann 20 mars mun Baggalútur sjá fyrir skemmtun á Selfossi í einhverju húsi sem ég man ekki fyrir mitt litla líf hvað heitir.
Stóra spurningin er.. hverjir hafa áhuga á því að mæta ? Verður alltof spennt
Ég mundi það!!! Það heitir Hvíta húsið. Ljómar upp
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Er þörf á að vita hverjir hafa ekki áhuga á að mæta?
Verða sætaferðir frá höfuðborgarsvæðinu?
Elsku Villimey, hafðu nú Selfoss með stórum staf.
En já, ég býst við að mæta, ef ég verð laus.
Ætli ég kíki ekki. Orðið mjöööög langt síðan ég fór á tónleika með þessum snúðum.Stekkur hæð sína
Ég mæti ekki enda verð ég gríðarlega upptekinn þessa helgi.
Ég er ekki búinn að flétta upp dagbókini en ég reikna með að ég verði upptekinn við að leita að fylgi Framsóknarflokksins.
Fyrirgefðu Regína mín.
En já, það er mjög mikilvægt að ég viti hverjir mæti. flissar
ÞÚ SVARAR EKKI SPURNINGUM ÞEIM ER LAGÐAR HAFA VERIÐ FYRIR ÞIG! HVERJU SÆTIR?!
Það er ekki útilokað að ég mæti, enda oft og tíðum, vegna náinna tengsla, staðsettur í höfuðborg glæpamenningarinnar á Íslandi.
Ég er að hugsa um að koma en það er ekki alveg öruggt.
Ég er að spá í að stefna á mætingu. Ég get ekki sagt fyrir víst að ég ætli að mæta alveg strax enda er það háð færð, heilsu sonar míns, fjárhagsstöðu og svo framvegis.
Ég er harðákveðinn í að spá ekki í að mæta. Nema þá ef Selfoss verður færður austur fyrir Skeiðarársand en íbúarnir skildir eftir fyrir vestan, þá mun ég hugsa málið upp á nýtt.
Það ætti að nægja að færa hvíta húsið sem ritstjórn ætlar að troða upp í.
Og væri þá ekki enn auðveldara að færa bara sviðið?