Þarf það að hreyfast af sjálfsdáðum?
Hmmm.... ja..... allavega í smástund eftir að maður hefur danglað í það.
Blikkar sæta kónginn sinn
Hrökklast afturábak og hrasar við
Vjer hjeldum að kvenkyns Gestapóar af gagnstæðu kyni væru eigi með svona Hrökklast aftur afturábak og hrasar við.
Er ekki alltaf verið að tala um jafnrétti?
mátar prinsessugallann
Hvað varð um dúllulegt fésið þitt, Væni-Grétar?

Lenti í skrumgleypinum.
Ég get alveg verið prótókollmeistari. Er það ekki ósköp svipað og þarfagreinir?

Ég mótmæli hástöfum! Ég hefi til að bera allar þær hæfniskröfur sem prúttukollameistarar þurfa. T.a.m. ber ég á höfði parrúkk, ég las eitt sinn undirritunarforskriftarprúttukoll embættismanna konungsins af Würtemberg og hefi haft undir höndum allnokkra prúttukolla á hinum ýmsu skjalasöfnum öðrum. Einneiginn þekki ég ættartölur allra konungsfjölskyldna veraldar, í a.m.k. seytján liði, suma allt til Krónosar og Adams, og þekki rétt ávörp hirðmanna allt frá hestasveini upp til konungs og [bzw.] keisara.
Því tel ég sjálfgefið að mér verði falið embætti prúttukollsmeistara.

Úff, og það versta er að ég trúi þér.
Ég held að ég væri alveg vitagagnslaus í svona hirð enda læt ég ílla af stjórn og væri vís til að gera eitthvað af mér bara.
Ég gæti kannski verið hálfviti við hirðina ef einhver góður tekur helminginn á móti mér.
Hirðfíflið? Ljómar upp
Ég er svoddan kvartviti að það yrði einhver annar jafn vitlaus að taka með mér hinn helminginn...

Það hugsa ég að gæti orðið svoldið erfitt.
Nema við finnum einhverja tvo sem gætu deilt stöðunni. Ljómar upp
Þarf í alvöru þrjá einstaklinga til að takast á við hlutverk hirðfíflsins ? Hlær
Örugglega miklu fleiri. Það má ekki gleyma að við erum hér að tala um bagglýsku hirðina, sem er miklu umfangsmeiri og flóknari en aðrar hirðir.
Það er aldrei nóg af köttum.
Þar rataðist kjöftugum satt á munn.
Ég vil samt minna á að Hlebbi er falskóngur og kuklari sem komst til meintra valda sinna í krafti trúgirni handhafa konungsvaldsins.
Ég geri það hér með að tillögu minni að Forseti vor snupri hann fyrir tiltækið og að í framhaldinu skamminst hann sín hressilega. Síðan væri alveg dæmalaust vel til fundið að Upprifinn, sérlegt níðskáld hirðar hins eina og sanna konungs, kveði ljóðabálk um hneisu þá sem Hlebbi hefur komið sér í...
Ég get alveg verið prótókollmeistari. Er það ekki ósköp svipað og þarfagreinir?
Ég mótmæli hástöfum! Ég hefi til að bera allar þær hæfniskröfur sem prúttukollameistarar þurfa. T.a.m. ber ég á höfði parrúkk, ég las eitt sinn undirritunarforskriftarprúttukoll embættismanna konungsins af Würtemberg og hefi haft undir höndum allnokkra prúttukolla á hinum ýmsu skjalasöfnum öðrum. Einneiginn þekki ég ættartölur allra konungsfjölskyldna veraldar, í a.m.k. seytján liði, suma allt til Krónosar og Adams, og þekki rétt ávörp hirðmanna allt frá hestasveini upp til konungs og [bzw.] keisara.
Því tel ég sjálfgefið að mér verði falið embætti prúttukollsmeistara.
Úff, og það versta er að ég trúi þér.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri