Það er augljóst að grályndið er að hrekkja ritstjórn nú um stundir... annars finnst mér grái liturinn smekklegur og viðeigandi...
Mér finnst hann leiðinlegur og niðurdrepandi. Það er allt svo grátt hér á Bakbrotsfelli. Mæsir dæðulega og lítur út um gluggann
Það er líka allt grátt þar sem ég er. Fundu þeir teinótt jakkafataefni til að hafa í bakgrunninn?
Það er ennþá rautt á www.baggalutur.is/gestapo þó svo að það sé orðið grátt á baggalutur.is/gestapo
Það er líka allt grátt þar sem ég er. Fundu þeir teinótt jakkafataefni til að hafa í bakgrunninn?
Ætli ritstjórn hafi ekki bara keypt þetta af Björgólfi fyrir spottprís? Hann vantar víst aura, orðið.
Ég vissi ekki að Björgólfur væri farinn að versla með jakkafataefni.
Dásamlegt.
Aparnir eru allaveganna gráir!
Blesi er í öllum regnbogans litum!
Sagði ekki einhver frægur að allar kenningar væru gráar? Eða grá væri kenningin öll? "Grau, meiner Freund, ist alle Theorie"? Göthe eða Hegel eða einhver af þessum frægu...
Ég vil bara koma því á framfæri að þrátt fyrir orðróm þess efnis, þá hef ég ekkert að gera með þessa breytingu... þrátt fyrir að mér líki hún stórvel.
Mér finnst þetta bara nokkuð flott.. Svoltið mafíósalegt, svo ég er að spá í að fá mér byssu og hatt til að hafa við höndina þegar ég er hér.
Mér finnst þetta bara nokkuð flott.. Svoltið mafíósalegt, svo ég er að spá í að fá mér byssu og hatt til að hafa við höndina þegar ég er hér.
Sko eða hatt til að hafa við höfuðið og byssu til að hafa við höndina. Svo ætla ég að fremja margvíslega glæpi yfir alnetið og reykja vindla.
Glæpi? Svona eins og að þykjast vera einhver frægur á Mæspeis?
Minnist þess þegar Ásdís Rán birtist á forsíðu Séð og heyrt undir fyrirsögninni Fórnarlamb tölvuþrjóta!
Ég kom ekki nálægt því ! ! ! Horfir flóttalega í kringum sig
Þetta er undirbúningur fyrir útsendingar Baggalúts í svarthvítu á lýðnetinu. Sparnaður sjáið þið til.
Þetta er undirbúningur fyrir útsendingar Baggalúts í svarthvítu á lýðnetinu. Sparnaður sjáið þið til.
Er þetta ekki frekar tengt eigin hvötum? Nú fullstignar til höfuðs. Glottir eins og fífl