Hér eiga Gestapóar að hrekkja þann er á undan var. Ég ætla að byrja á því að hrekkja höfund félagsritsins sem ég var að lesa er mér datt þessi leikur í hug, þar sem engin er á undan mér. Fyrsti svarandi hrekkir svo mig, ef hann þorir, sá næsti þann og svo koll af kolli.
Hoppar uppúr feluholu í jörðinni, lendir fyrir aftan sofandi Tigru og togar hressilega fast í skottið á henni. Hoppar svo aftur oní holuna áður en hún sér til.
(Var að lesa ljóðið hennar og þegar ég horfði á myndina af henni sofandi datt mér þessi hrekkur í hug tíhíhí).
Kemur hlaupandi og togar í neðri vörina á Hugfreði og sleppir síðan svo það smellur í
Krúnurakar Villimey
Læðist inn setur múl á Andþór
Stelur teningum Herbjarnar
Brestur í óstöðvandi grát og bindur rembihnút á internetsnúru Villimeyjar
Drekkur Herbjörn undir borðið og rakar svo af honum augnbrýrnar meðan hann er meðvitundarlaus af áfengisdrykkju.
Prumpar á Grágrím og brókar hann
Rakar yfirvaraskeggið af Ívari og límir lakkrís á í staðinn.
Drepur í hjá Hugfreði. Heyrðu, er dautt hjá þér?
Setur neðri vörina upp fyrir augabrýr og lokar rettuna inni þegar hann snýr sér við og segir Ha.
Gefur Regínu sólarlandaferð til Flórída og hringir í FBI og lætur vita að hún er mér sprengju i töskunni
Opnar súrströmming dós í íbúð Grágríms og dreifir innihaldinu um allt
mylur heilt prins-póló stykki yfir rúmið hjá Útvarpsstjóra
Setur síld inní miðstöðina á bíl Hvurslags
Tekur gleraugun af Nermal og snýr honum svo í nokkra hringi.
Stelur öllu áfengi Kífins.
býður fólki í gleðskap heima hjá Úbba
Ljómar upp
brókar Karg