Samkvæmt falsmiðlunum er kakóverð í hæstu hæðum um þessar mundir. Samkvæmt lögmálinu um framboð og eftirspurn þýðir það að eftirspurn eftir því er mikil sem þýðir að erfitt getur verið að fá kakó sem þýtt getur skort á því. Ætli sje hætta á skorti á (Hexiu)kakói á Gestapó ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Eða kannski eru þessar frjettir tóm vitleysa.
Það má vel vera að þetta sé rétt hjá falsmiðlunum (aldrei þessu vant) en það hefur bara engin áhrif á Hexiukakóið. Ég bý til mitt kakó úr úrvals súkkulaði sem ég fæ frá ónafngreindum birgjum. Ljómar upp og mallar kakó til að sanna að hér sé enginn kakóskortur
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ljettir nokkuð og þiggur kakó
En hvar fá þessi ónafngreindu birgjar eiginlega kakó ef kakóskortur er í heiminum ? Klórar sjer í höfðinu
Það er náttúrlega leyndarmál, svo óvinir ríkisins loki ekki á þá.
Þessi umræða minnir helst á það þegar Villimey sagði okkur hve hrifin hún væri af slátrinu. Þetta getur hver skilið á sinn hátt og ég hef skemmt mér konunglega (enda konungur) við lesturinn.
Þú og þínar súru hugsanir...
Gefur Hlebba jólakakó
Flissar perralega
Fær næstum hjartaáfall við titil þessa þráðar
er ekki örugglega nóg til af leyniefninu samt?
Fær næstum hjartaáfall við titil þessa þráðar
Huggar kisu og gefur henni kakó
Þessi umræða minnir helst á það þegar Villimey sagði okkur hve hrifin hún væri af slátrinu. Þetta getur hver skilið á sinn hátt og ég hef skemmt mér konunglega (enda konungur) við lesturinn.
Þú og þínar súru hugsanir...
Gefur Hlebba jólakakó
Flissar perralega
Má skilja þetta sem svo að Villimey sé að gefa vísbendingar um áhuga sinn fyrir súru slátri?
Horfir íhugandi í tóman kakóbollann
Jæja, á ekki að blanda sléttfullann nornapott fyrir Ívar? Mætir með bollann sinn