Ég fékk allan fjárann, þó nokkuð mikið af bókum, 2 stk. dvd og peysu. Ein bókin er svo stór og þung að ég þarf aðstoð við að fletta blaðsíðunum. Á satt að segja erfitt með að skilja innbyrðis samkeppni listfræðinga í að gefa út sem stærsta doðranta. En bókin sú arna er eigulegur gripur, því fer ekki fjarri.
Er það þrjátíuþúsundárabókin?
Heimtur voru nokkuð rýrar í ár, en skemmtilegasta gjöfin var spilið Vestfirzka kvótasvindlið, sem er útgerðarspil af bestu sort.
Heimtur voru nokkuð rýrar í ár, en skemmtilegasta gjöfin var spilið Vestfirzka kvótasvindlið, sem er útgerðarspil af bestu sort.
þetta hlýtur að vera eitthvað bogið. Vestfirðingar ljúga aldrei og svindla aldrei heldur. Þannig að þetta hlýtur að vera eintómur skáldskapur á bak við þetta... glottir
Þetta árið fækkaði gjöfum til mín umtalsvert, en dóttirin fékk þeim mun fleiri (og vel það). Einn sniðugan pakka fengum við kerlingin, trébakka, sem á voru mynddiskur, popp og baukur af malti og appelsíni. Þá fengum við einnig Eglu, steinagrill (nei, ekki til að grilla steina), ostahnífa og ýmislegt sem ég nenni ómögulega að telja upp eða hefi gleymt.
Ég fékk fullt glas af vatni með brauðinu.
Ég átti alveg eftir að tjá mig á þessum þræði. Það flottasta sem ég fékk var forláta Orient úr frá Nóttu minni. Þess má til gamans geta að ég gaf henni einnig úr í jólagjöf og það var einnig af Orient gerð...