Nú er allavega eitt fyrirtæki, sem reynir að afgera (undo) óheppilega atburðarás.
Nýi Glitnir reynir að bakka til baka í góðærið.
Lengi lifi Íslandsbanki, ef hann vill.Glottir eins og fífl
Bankinn sá tekur hið minnsta afgerandi forystu í eftirsjá.
http://baggalutur.is/skrif.php?t=1&id=1551
Þarf að segja meira?
Æ ég hætti aldrei að kalla þetta Íslandsbanka, þannig það skiptir mig litlu.
Hvað þá með Búnaðarbankann? Umskírðuð þér hann sjálfar?
Ég kallaði Kaupþing alltaf KB Banka einfaldlega vegna þess að KB stóð fyrir Kriminal Bastards... eins og allir sem áttu viðskipti við þá fundu út fyrr eða síðar.
En KB er Kaupfélag Borgfirðinga. Er þá KB Banki nýtt heiti á sparisjóði þeirra Borgfirðinga?
ÉG VIL FÁ IÐNAÐARBANKANN, ÚTVEGSBANKANN, ALÞÝÐUBANKANN, VERSLUNARBANKANN OG BÚNAÐARBANKANN AFTUR OG SVO VIL ÉG AÐ SEÐLABANKINN VERÐI ENDURNEFNDUR OG KALLAÐUR DORMBANKI!
Hvernig hljómaði nú aftur kvæðið . . . Raular & reynir að rifja upp
♪♪♪ Í kollinum geymi ég gullið, sem gríp ég höndum tveim.
Svo fæ ég vexti & stýrivexti, & dráttarvexti af þeim . . . ♪♪♪
Ég heyrði þetta lag um daginn í útvarpinu... 3 mínútur takk fyrir!
ÉG VIL FÁ IÐNAÐARBANKANN, ÚTVEGSBANKANN, ALÞÝÐUBANKANN, VERSLUNARBANKANN OG BÚNAÐARBANKANN AFTUR OG SVO VIL ÉG AÐ SEÐLABANKINN VERÐI ENDURNEFNDUR OG KALLAÐUR DORMBANKI!
En Samvinnubankann? Hann var þó bestur af þeim öllum.....

Ég var búinn að gleyma honum!
Það er þó alltént einn banki á Ísalandi sem hefur ekki misst æruna. Það er Blóðbankinn. Verstur andskotinn samt að hann virðist alltaf skorta svolítið upp á innistæður.
Það er bara vegna þess að vampírurnar í Eskihlíð eru farnar að fjölga sér úr hófi fram og taka svo mikið út... hringir í Buffý
Ég skipti við UBS hérna í Sviss. Hann er ekkert að fara neitt, hvorki á hausinn eða í ginið á Bretum.