Gaman, gaman klappar saman lófunum
Það streymir fólk í veizluna mína. Hérna gerið svo vel og fáið ykkur rjúkandi kakó og vöfflur og njótið þess að vera á bezta og fallegasta stað á landinu. Kíkið endilega í sund eða gerið ykkur það sem þið viljið til gamans.
Hann Kaupa-Héðinn er með magnaðan mánudag í kaupfélagsbúðinni og opið fram á kvöld ef þið vijið gera jólainnkaup hérna á Ýsufirði. Svo verður kvöldverður fram í Vatnehúsi eftir klukkan átta og þar geta allir fengið gistingu. Það er alltaf nóg pláss í Vatnehúsi.
Svo langar mig að segja ykkur smá vísu, sem ég samdi fyrir stuttu og er nú á allra vörum hér í firðinum:
Á Ýsufirði er engin kreppa
allir vilja þangað skreppa.
Það er nóg að bíta og brenna,
þar börnum sund ég er að kenna.
Sundlaugur er sómagrér
sundið kennir börnum hér
Víst ég tel að Weissmüller
virðing bæri fyrir þér.
Birtist óvæntTil hamingju þið tveir sveitasómar!
Sagðirðu mysa Ragnar, ég verð endilega að prófa hana!Blikkar Ragnar
Það er annars altaf jafn gaman að koma hingað vestur.
Ljómar eins og tungl í fyllingu Og þú er bara vel hagyrtur sjálfur, kæri Hlégestur.
Kemur seint og um síðir
Sælir sælir.
dottar aðeins
Já, elskurnar mínar, fáið ykkur endilega mysu hjá mér. Dregur upp flösku og lækkar róminn Hann Laugi er svoddan bindindismaður hann veit ekkert hvað ég er að tala um Svo verður líka næg mysa með kvöldmatnum á eftir. Hún er í svona, svolítið mismunandi flöskum og mislit Glottir eins og fífl
Kemur löðursveittur eftir 2ja tíma róður. Fer beint í kakóið, reynir að borða vöfflu en missir hana á hné sér, of þreyttur til að taka hana upp en ljómar upp
Til hamingju Vatne og bóndi á Brimslæk!
Reynir að stökkva hæð sína en er allt í einu farinn að hrjóta með kakóið í hendi
Setur mússík á fóninn og bíður eftir að vera boðið upp í dans
Rankar snögglega við sér og þykist heyra skoska þjóðlagamúsík. Stekkur hæð sína
Má bjóða þér í hálandadans Trix?
Ljómar upp Að sjálfsögðu! Skellir sér út á gólf með Kífnum
Byrjar dansinn og sveiflast með í fjörugum byltum. Vafflan rennur þó niður og verður honum að falli í ærnum fettum
Obbosí, ég hefði betur ekki gleymt henni þarna á hnénu.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið og hefur dansinn af meiri varkárni
eigum við að prófa nýja músík, eitthvað rokkgen í þér að finna?
Rokk? Að sjálfsögðu! Hvernig rokk má bjóða herranum?
Það er beysin list að dansa við Zeppelin, þó gaman sé það. ACDC...en eiga dömur ekki að velja?
Setur Zeppelin á fóninn
syngur hástöfum, eilítið falskt, enda ekki hlaupið að því jafna meistarann
♪♪I´ve been dazed and confused for so long it´s not true....♪♪♪
smellir í góm, gengur vaggandi yfir til ... (hugsar með sér hvort nornir séu ungfrúr?) ungnornarinnnar og beygir yfir mjöðm sér
Jæja, gaman að sjá hvað fólkið skemmtir sér vel. En nú er búið að dekka borð með ýmsu ýsfirzku góðgæti heima í Vatnehúsi. Þar er hangiket, rúgbrauð, flatbrauð, harðfiskur, súrmatur og einnig nýsteikt laufabrauð og svo reyktur silungur úr Þvottá og síld úr firðinum... alveg ósýkt.
Svo á ég líka nóg af malti og appelsíni og spur kóla. Auðvitað veitum við ungmennafélagsmenn ekki áfengi, enda vel hægt að vera án þess en Ragnar á Brímslæk kom með einhverskonar hátíðarmysu... hann er eitthvað svo laumulegur með hana. Hún er í margskonar mismundani flöskum og mismunandi á litinn Klórar sér í höfðinu ég hef aldrei séð annað eins. Þið farið bara til Ragnars ef þið viljið svona hátíðarmysu veltir því fyrir sér að smakka líka[/s]
kíkir við og knúsar Sundlaug sinn fast og lengi vel Innilega til hamingju með rafmælið elsku kúturinn minnLjómar upp
Kemur fljúgandi í geimskipi
Til hamingju og skál ! Vonandi erum vjer eigi of seinir í veisluna, óvinir ríkisins unnu lítilsháttar skemmdarverk á geimskipinu.