Ég mæti!
Er skylda að drekka 20 blúta og ef svo er, skiptir stærðin á þeim máli?
20 20 cl blútar eru ásættanlegir. Ef þú átt ekki 20 cl dósir má umreikna fjölda dósa.
Má ég koma?
Alveg endilega.
Er ekki örstutt síðan síðasta Þarfaþing var haldið?
Upphitunarteitið fyrir tónleikana var varla alvöru Þarfaþing. Það skemmdist ekkert, og ég var fljótur að taka til. Það telst því eiginlega ekki með.
Ég finn enga skondna tengingu milli nafnsins míns og orðsins "Þing". En ég myndi mæta ef ég héldi slíkt. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ostaorgía? Skeraskak? -hvenær er partý?Glottir eins og fífl
Annars er ég ekki allendis fjarri því að það sé möguleiki á því að ég geti ásamt karlanganum, sem ég hef þó ekki rætt málið við, mætt í teiti það er auglýst er hér á undanförarinni síðu.
En ég lýsi yfir megnri fyrirlitningu á því að vera ekki formlega boðið í teiti síðastliðið laugardagskvöld, sem gæti leitt til þess að ég gagni berserksgang í teitinu sem er auglýst hér, það er að segja ef ég mæti sem er ekki víst því ég er svo móðguð...
Iss Álfelgur, það mætti fullt af fólki sem var ekki formlega boðið. Viltu fá boðskort núna?
Ég finn enga skondna tengingu milli nafnsins míns og orðsins "Þing". En ég myndi mæta ef ég héldi slíkt. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ostaorgía? Skeraskak? -hvenær er partý?Glottir eins og fífl
Ostasmökkun ? Glottir eins og enn meira fífl
Annars er ég ekki allendis fjarri því að það sé möguleiki á því að ég geti ásamt karlanganum, sem ég hef þó ekki rætt málið við, mætt í teiti það er auglýst er hér á undanförarinni síðu.
En ég lýsi yfir megnri fyrirlitningu á því að vera ekki formlega boðið í teiti síðastliðið laugardagskvöld, sem gæti leitt til þess að ég gagni berserksgang í teitinu sem er auglýst hér, það er að segja ef ég mæti sem er ekki víst því ég er svo móðguð...
Hjer er um nokkra möguleika að ræða og skiptir talsverðu máli m.t.t. öryggisgæslu og prótókollsreglna í tengslum við teiti framtíðarinnar að vita svarið:
(1) Yður var eigi formlega boðið og þjer mættuð eigi
(2) Yður var eigi formlega boðið en þjer mættuð samt
(3) Yður var óformlega boðið en þjer mættuð eigi því boðið var eigi formlegt
(4) Yður var óformlega boðið og þjer mættuð þrátt fyrir að boðið væri eigi formlegt
Ég finn enga skondna tengingu milli nafnsins míns og orðsins "Þing". En ég myndi mæta ef ég héldi slíkt. Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Ostaorgía? Skeraskak? -hvenær er partý?Glottir eins og fífl
Bleikjuball... Glottir einnig eins og fífl
Isss. Ég kem ekkert á klakann fyrr en tveim dögum seinna.
Þetta er hvorteðer bara ógeðslega asnalegt Þarfaþing Sparkar í dós og tautar eitthvað um ósanngirni
Mætt!
Hrökklast afturábak og hrasar við
Nú þegar ? Athugar hvort tímavjelin sje ekki örugglega á sínum stað
Þú gleymir því kannski að ég er ári/púki/djöfull, maður veit aldrei hverju við tökum upp á. Þú manst t.d. að Hóras hékk á árshátíðinni langt fram á næsta dag.
Þetta er megastuð hérna á Þarfaþingi maður!
Ég skal mögulega láta sjá mig, en má ég koma edrú? Starir þegjandi út í loftið
Eflaust er leyfilegt að koma edrú. Hinsvegar kann að vera óleyfilegt að fara edrú.
Hmm. Það er anzi sennilegt að ég verði vant við látinn þetta kvöld. Ef á daginn kemur að svo verði í raun ekki, þvert á útlitið nú um stundir, mun ég mæta. Að öðrum kosti neyðist ég til að láta fyrrfrágreinda harmafregn standa óhreyfða, að ég muni ekki mæta.
Er svolítið bundinn þetta kvöld en kanski að ári.
Reynir að leysa hnútana sem halda Galdra en flækist sjálf í reipunum
Árans. Nú er ég líka bundin og kemst ekki heldur.
Lítur á dagatalið sitt
Sér að það er ekkert að gerast hjá honum á þessum tíma
Skrifar inn áminningu í dagatalið
Telur góðar líkur á því að mæta
Hmm. Það er anzi sennilegt að ég verði vant við látinn þetta kvöld. Ef á daginn kemur að svo verði í raun ekki, þvert á útlitið nú um stundir, mun ég mæta. Að öðrum kosti neyðist ég til að láta fyrrfrágreinda harmafregn standa óhreyfða, að ég muni ekki mæta.
Í guðanna bænum farðu ekki á fyllerí um helgina, þú verður þá skelþunnur á aðfangadag!
Já ég reikna með því að ég komi á Þarfaþingið.xT
Hmm. Það er anzi sennilegt að ég verði vant við látinn þetta kvöld. Ef á daginn kemur að svo verði í raun ekki, þvert á útlitið nú um stundir, mun ég mæta. Að öðrum kosti neyðist ég til að láta fyrrfrágreinda harmafregn standa óhreyfða, að ég muni ekki mæta.
Í guðanna bænum farðu ekki á fyllerí um helgina, þú verður þá skelþunnur á aðfangadag!
Ja, það er spurning!
Ég gæti rekið inn nefið, en það væri að lokinni vinnu kl. 22:00 að viðbættri þeirri staðreynd að sú vinna hefðist aftur kl. 10:00 morguninn eftir.