Ahh ...
Ekki er tekið fram í titli þráðarins hvaða er átt við með 'þráðinn'. Hvergi kemur fram að um þennan tiltekna þráð sé að ræða.
Þá komum við að þeirri staðreynd að þráðurinn Tala dýrsins, sem ég stofnaði, hefur náð ótrúlegum vinsældum á skömmum tíma. Hann er einn best heppnaðasti þráðurinn hér á Gestapó í seinni tíð. Hann á því fyllilega skilið að vera kallaður 'þráðurinn', með greini.
Ég vinn því þennan leik.
Fagnar sigri
Heppnaður - heppnaðri- heppnaðastur? Klórar sér í höfðinu
Já, en ekki hvað ? Treður pela með rommi uppí Tinu fyrir smámunasemina
Það er líklega óþarfi að segja 'heppnaðastur', þegar 'best' er skeytt fyrir framan, þar sem 'best' gefur til kynna efsta stig. Ég get fallist á það.
Það er líklega óþarfi að segja 'heppnaðastur', þegar 'best' er skeytt fyrir framan, þar sem 'best' gefur til kynna efsta stig. Ég get fallist á það.
Nema þú hafir ætlað þér að nota efstasta stig, sem er efstastastasta stigið. Spurðu bara Dorrit.
Nú, eða Pumbaa.