Átti það plan ekki að klárast fyrir helgi?
Á ekki að geyma tunnurnar þar?
Á planinu þá?
Verða tunnurnar á háu plani?
Er verið að plana eitthvert tunnudæmi?
Ég fann hefil... tunnuhefil, svona kúfta, til að hefla fjalirnar!!! heflar svo að allt fer í kaf á krúllóttum spónum[s]
Ætlar þú þá að smíða tunnurnar sjálfur? Hver var annars spurningin hjá þér?
Og hvað á svo að geyma í tunnunum?
Er ekki best að fá alvöru beyki til að smíða tunnurnar? Veltir fyrir sér hvort nokkur beykir fyrirfinnist í Baggalútíu
Beyki væri fínt. Ef fyrirfinnst ekki, þá verðum við að nota greni. Neðri partinn úr greni, eins litið af kvistum og hægt er.
Nú þarf ég að leiðrétta þig aðeins Kiddi minn. Beykir er gamalt íslenskt orð yfir tunnusmið.
Eigum við ekki hins vegar að hafa tunnurnar úr eik?
Getur svo ekki einhver bruggað úrvals viskí til að geyma í tunnunum? Varla förum við að eyða þeim í einhverja síld. (Hana á að reykja!)
Kveikir sér í einni síld
Var búið að fá beyki?
Eru ekki einhverjir hér, sem geta haldið á hamri?
Fyrir rétthenta eða örvhenta?
Venjulegum eða klaufahamri?