Gefur Jarma sinn, enda súg alveg hættur að nota hann
Fyrst þú nefndir þetta...
Eg var að komast að því að hér í Baggalútíu gildir sú sjálfsagða kurteisi að nýliðar kynni sig áður en þeir hefja þeysireið um Baggalútískt samfélag.
Það má segja að ég hafi brugðist þessri skyldum minni, enda er ég búinn að vera að ráfa hér um í meira en heilan mánuð, án þess að gefa nokkur deili á mér. Hugsanlega stafar þetta sinnuleysi mitt af uppruna mínum á hinni fornu plánetu Maltus.
Nafn mitt er Jarðlingur frá Maltus. Vegna verulega aukinna samskipta Baggalútíu við alheiminn var ég sendur til að kynna mér ríkið betur. Hlutverk mitt er að skoða hvort Baggalútía komi til greina sem aðildarríki í alheimsyfirráðinu. Ég vil tala það strax fram að ég er einungis algerlega valdalaus senditík, sem hefur engin völd í alheimsráðinu, og virðist vera svo lítilsgildur að ég hef ekki náð sambandi við það. Það verður því að senda umsókn um aðgang í gegnum aðra aðila en mig.
Reglur stafsetningar lærði lengi
Lítið virðist það þó hjá mér duga
Við ritað mál ég relgurnar svo tengi
Rétt mál skal þó ætið hafa í huga
Stafabrengl mér stirt gengur að finna
Stundum veldur það mér miklum baga
Við yfirlestri allra texta minna
Ætíð verð að hafa í huga að laga

Þetta er eina stafaruglið sem ég finn í þessu innleggi.
Vertu því velkominn og hegaðu þér vel...
Gefur Jarma sinn, enda súg alveg hættur að nota hann
Hrökklast aftur á bak og hrasar við

Fyrst verið er að ræða stafsetningu og málfar sýnist mér þarft að benda Huxa á boðhátt sagnarinnar að haga [sér], enda er hann haga (þú) eða hagaðu.

Já, það er ekki á hverjum degi sem maður fær gefins litla heila.
Velkominn Maltusmaður! Hef ég séð þig einhverstaðar áður? Kannast svakalega við þig.
Gefur Jarma sinn, enda súg alveg hættur að nota hann
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Já, það er ekki á hverjum degi sem maður fær gefins litla heila.
Veltir fyrir sér hvort Jarmi sé uppvakningur í megrun fyrst hann vill bara litla heila
Vertu því velkominn og hegaðu þér vel...
Fyrst verið er að ræða stafsetningu og málfar sýnist mér þarft að benda Huxa á boðhátt sagnarinnar að haga [sér], enda er hann haga (þú) eða hagaðu.
Mér finnst líklegra að þarna hafi innsláttarpúkinn stolið einu ð-i frá Huxa, og orðið hafi átt að vera hegðaðu.

Alveg rétt hjá þér Hexia. Ég kom að bévítans púkanum sitjandi upp á nýjja flakkaranum mínum, rífandi eðið í sig með smjöri og gólaði á mig þegar ég hastaði á hann: Morðið beiri farðhisk. Þetta eru leiðinda kvikindi...
Þarna var púkanum rétt lýst! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Vjer viljum seint og um síðir bjóða Maltus formlega velkominn, hjer er ávallt heppilegt að fá nýliða sem eru í góði sambandi við geimverur þar eð slíkt kann að auðvelda hönnun og byggingu opinberrar stjörnusambandsstöðvar Ljómar upp.

Ég þakka kærlega fyrir, ég á mér einmitt eina ósk heitasta, og það er að verða sendifulltrúi Baggalútíu í útgeimi. Get því miður ekki hafið slík störf strax, þar sem ég er fastur í innflytjendahliðinu við að lesa stjórnarskrána upphátt, afturábak. Þarf einnig að leysa önnur verkefni áður en mér verður hleypt inn.