Dægradvöl.
--------------
Smellið fram staðreyndum.
--------------
Þú veist að þú ert tölvunörd þegar þú reynir að formata stílabókina þína.
Þú veist að þú átt verulega leiðinlega foreldra þegar þau setja takmörk á hvað þú mátt vera lengi í tölvunni.
Þú veist að þú átt þér ekki líf þegar foreldrarnir þurfa að takmarka tíma þinn í tölvunni.
Þú veist að þú ert ekki orðinn lögráða þegar foreldrar þínir takmarka tíma þinn í tölvunni...
Þú veist að þú ert orðin/n lögráða þegar þú ert flutt/ur inn í tölvuna.
Þú veist að jólin eru á næsta leiti þegar þú hatar IKEA.
Þú veist að bensínið er að fara að hækka mikið þegar bensínstöðvarnar bjóða tveir fyrir einn af vaselíni.
Þú veist að þú ert orðinn gamall þegar læknirinn þarf ekki að taka röntgenmyndir heldur heldur hann þér bara fyrir framan loftljósið.
Þú veist að þú ert háður Gestapó þegar þú skoðar það í símanum.
Þú veist að þú átt við vandamál að stríða þegar þú ferð í bað og klæðir þig upp á til að hanga á Gestapó.
Þú veist að þú átt við vandamál að stríða þegar þú manst ekki lengur raunheimanöfn vina þinna, bara nikkin þeirra eða Gestapónöfn.
Þú veist að þú ert andfúll þegar fólk grátbiður þig um að reka við.
Þú veist að það er komin kreppa þegar þú breytir barnaherberginu í hænsnakofa.
Þú veist að það er komin kreppa þegar þú breytir hjónaherberginu í pútnahús.
Þú veist að það er komin kreppa þegar það er svínastíulykt í eldhúsinu.
Þú veist að það er komin kreppa þegar þú stendur sjálfan þig að því að spá í hvað hundurinn muni duga oft í matinn.
Þú veist að það er komin kreppa þegar þú ferð ekki lengur í ríkið til að kaupa rauðvínsbelju heldur ferð út í sveit og kaupir rauða belju.
Þú veist að það er kreppa þegar límsniff er farið að vera "ásættanleg áhætta".