— GESTAPÓ —
Þú veist að X þegar Y
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3, 4, 5, 6  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 6/12/08 14:55

Þú veist að þú ert með brjóstablæti þegar þú bölvar því að brjóst skuli ekki stækka og stinnast við kynörvun eins og getnaðarlimir gera.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 18/5/09 18:47

Þú veist að þú átt við drykkjuvandmál að stríða þegar þú hættir að horfa á Leaving Las Vegas því þú verður svo þyrstur af að horfa á hana.

Þú veist að þú átt við drykkjuvandmál að stríða þegar Mel Gibson biður um eiginhandaráritunina þína.

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Garbo 12/11/09 14:26

Þú veist þú þarft að fara að panta pláss á elliheimilinu þegar þér finnst allt fólk undir fertugu vera krakkar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 12/11/09 18:50

Þú veist að þú ert með fésbókarblæti þegar þú getur ekki farið að sofa fyrr en þú ert búinn að skrifa athugasemd við allar færslur dagsins!

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 19/11/09 12:38

Þú veist að þú býrð í pínu rasísku landi, þégar "Jólasmákökurnar í ár" eru Júðakökur...‹Starir þegjandi út í loftið›

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Miniar 20/11/09 00:29

Þú veist að það þarf að auka hitann þegar þú þarft að hita up fötin þín, eina flík í einu, með því að veiða þau inn undir sængina, til að geta klætt þig þegar þú vaknar, því þú vogar þér alls ekki frammúr nema vel klæddum.

Staðreyndir breytast ekki þótt þú sért þeim ósammála.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 23/5/10 02:51

Þú veist að þig vantar pening þegar betlari kemur til þín og gefur þér pening.

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
núrgis 23/5/10 14:49

Jarmi mælti:

Þú veist að þú ert með brjóstablæti þegar þú bölvar því að brjóst skuli ekki stækka og stinnast við kynörvun eins og getnaðarlimir gera.

Jarmi..Vesalings greyið hefur greinlega aldrei verið við konu kenndur. A.m.k. ekki alvöru konu sem var kennd og til í tuskið.

Kattavinur og amma skrattans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
núrgis 23/5/10 14:50

Miniar mælti:

Þú veist að það þarf að auka hitann þegar þú þarft að hita up fötin þín, eina flík í einu, með því að veiða þau inn undir sængina, til að geta klætt þig þegar þú vaknar, því þú vogar þér alls ekki frammúr nema vel klæddum.

Og Miniar.. Bara sofa í fötunum. Bezt í heimi. Með Simpson í gangi svo maður þurfi ekki að hugsa neitt.

Kattavinur og amma skrattans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 23/5/10 17:58

núrgis mælti:

Jarmi mælti:

Þú veist að þú ert með brjóstablæti þegar þú bölvar því að brjóst skuli ekki stækka og stinnast við kynörvun eins og getnaðarlimir gera.

Jarmi..Vesalings greyið hefur greinlega aldrei verið við konu kenndur. A.m.k. ekki alvöru konu sem var kennd og til í tuskið.

Það virðist reyndar vera hægt að skilja yrðingu Jarma á tvennan hátt. Í fyrsta lagi; þannig að brjóst stækki og stinnist við kynörvun alveg einsog getnaðarlimir. Og þá með sömu eiginleikum, t.a.m. mjög mikilli aukningu á blóðflæði, að „lítil brjóst stækki meira en stór“, standpínu, o. þ. f-e. g.
Eða í öðru lagi þessi yrðing: „Brjóst stækka og stinnast við kynörvun. Það gera getnaðarlimir líka.“ Sem er rétt. Orð Núrgisar styðja þá fyllyrðingu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
núrgis 23/5/10 18:59

Maður fær nú bara fiðring í dúllurnar af öllu þessu umtali.

Kattavinur og amma skrattans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 23/5/10 19:55

Þú veist að skólakerfið er komið í rúst þegar Jarmi er farinn að kenna kynfræðslu!

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Húmbaba 1/3/11 21:29

Þú veist að þráðurinn er kominn á síðasta snúning þegar innleggin koma eitt á ári.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/3/11 23:15

Þjer vitið að eigi er víst að þráðurinn sje kominn á síðasta snúning þegar (minnst) tvö innlegg birtast þar sama daginn.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 15/2/12 00:18

Þér vitið, að þér leggið mikla áherzlu á nám yðar, ef þér svo gott sem búið í lesaðstöðu námsdeildarinnar.

Einnig vitið þér, að þér stundið Gestapó af krafti, ef þér mætið Gestapóum, og neitið að þekkja þá öðrum nöfnum en þeim bagglýzku.

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Garbo 27/5/13 18:22

Þú veist að endalokin nálgast þegar ungi myndarlegi afgreiðslumaðurinn í 66°N reynir að selja þér gönguskó með þeim orðum að mamma hans eigi einmitt svona skó og sé rosa ánægð með þá. ‹Dæsir mæðulega og lítur út í rigningarsuddann›

sígræn
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Þér vitið að maður er aftur kominn heim til síns æskuhaga, þegar gosdrykkirnir bragðast ekki lengur eins og skarni á síðasta söludegi.

Guð refsi danmörku.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kargur 17/6/13 00:56

Þjer vitið að þráður er aldinn ef Jarmi á innlegg á síðunni.

Það held ég nú!
        1, 2, 3, 4, 5, 6  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: