— GESTAPÓ —
Þú veist að X þegar Y
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3, 4, 5, 6  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Villimey Kalebsdóttir 27/11/08 00:12

Þú veist að þér er illa við væmni þegar þú færð kjánahroll við það eitt að lesa orðið væmni.

Veiru og sýklavopnasérfræðingur Baggalútíu - Frilla Konungs - Líffræðikennari í Barnaskóla Baggalútíu - Kóbaltblá - Jólabarn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 27/11/08 00:18

Þjer vitið að þjer hafið eigi verið nógu mikið á Gestapó þegar þjer uppgötvið að þráður á borð við þennan hefur lengst um u.þ.b. 50% síðan þjer lituð á hann síðast ‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 27/11/08 00:23

Þú gerir þér grein fyrir því að þú lifir ótrulega leiðinlegu lífi þegar þig hlakkar óskaplega til að fara í íslenskufyrirlestur með 90 glærum.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Garbo 27/11/08 14:11

Dula mælti:

Þú gerir þér grein fyrir því að þú lifir ótrulega leiðinlegu lífi þegar þig hlakkar óskaplega til að fara í íslenskufyrirlestur með 90 glærum.

Vonandi lærðir þú eitthvað gagnlegt! ‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›

sígræn
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 27/11/08 15:41

Garbo mælti:

Dula mælti:

Þú gerir þér grein fyrir því að þú lifir ótrulega leiðinlegu lífi þegar þig hlakkar óskaplega til að fara í íslenskufyrirlestur með 90 glærum.

Vonandi lærðir þú eitthvað gagnlegt! ‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›

‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið›

Annars veistu að þú ert Gestapói þegar þú sérð nafnið 'Vatnar' á prenti í raunheimum og flissar smá inní þér!

♦ brjálaði demanturinn ♦ valkyrja ♦ elvis ♦ nýliðaskelfir, konan með hinn stimpilinn ♦ blámannagrúppía ♦ fæst nú einnig með háskólagráðu ♦
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 28/11/08 09:48

Þú veist að þú ert með frábæran efnafræðikennara þegar eftirfarandi spurning er í verkefnaheftinu sem hann skrifaði.

"Efnahvarf við karboxylsýru er oftast dæmi um...
a) kjarnsækið viðbótarhvarf
b) kjarnsækið skiptihvarf
c) rafsækið fráhvarf
d) rafsækið viðbótarhvarf
e) róttæklingahvarf
f) dularfullt mannshvarf"

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 28/11/08 09:50

Þú veist að þú veist ekkert um efnafræði þegar f. er eina svarið sem þú skilur eitthvað í, í dæminu hennar Furðu...

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 28/11/08 10:40

Það hefði verið betra að segja, "Þú veist að Furða veit meira en þú um efnafræði þegar etc etc..."

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 28/11/08 11:06

Þú veist að þú hefur furðulegar langanir þegar „rafsækið viðbótarhvarf“ perrar þig.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Annrún 28/11/08 11:27

Þú veist að þú hefur lært of mikið við tölvuna þegar þér er orðið illt í bakninu og öxlunum...

Saklaus og sæt sveitastelpa - Opinbert ræktartröll Gestapó (ásamt Fergesji) - Alltaf til í góðar sturtuferðir.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 28/11/08 11:35

Þú veist að þú þarft á nuddi að halda þegar þér er orðið illt í bakinu og öxlunum...

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kífinn 28/11/08 11:42

Þú veist að þér er illt í baki og öxlum þegar þú vaknar og vildir óska þess að þetta væri bara þursabit.

Takk fyrir áheyrnina.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 28/11/08 12:00

Þú veist að þú gætir átt við þunglyndi að stríða ef fyrstu orðin sem þú segir þegar þú vaknar eru "Æ fokk".

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Grágrímur 28/11/08 13:40

Þú veist að fyrirtækið sem þú vannst hjá í 40 ár er algert skítafyrirtæki þegar þú hættir að vinna og sest í helgan stein og í staðinn fyrir gullúr frá fyrirtækinu, hringir starfsmannastjórinn í þig tvisvar í mánuði og segir þér hvað klukkan er.

Einfættur Gestapói númer 2. • Atvinnuátfíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dula 28/11/08 14:35

Garbo mælti:

Dula mælti:

Þú gerir þér grein fyrir því að þú lifir ótrulega leiðinlegu lífi þegar þig hlakkar óskaplega til að fara í íslenskufyrirlestur með 90 glærum.

Vonandi lærðir þú eitthvað gagnlegt! ‹Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt er›

Já ég lærði greinilega ekki alveg nógu vel í þessum tíma, enda þessi regla á glæru númer 79. ‹Glottir eins og fífl›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 28/11/08 16:11

79 er prímtala! ‹Ljómar upp›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/11/08 16:23

Þegar á Gestapó birtist innlegg þar sem minnst er á prímtölur vitið þjer nánast 100% hver höfundur þess innleggs er án þess að sjá nafnið ‹Glottir eins og fífl›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 28/11/08 16:29

Þú veist að innleggið sem þú varst að lesa er fyndið þegar þú hlærð upphátt.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
        1, 2, 3, 4, 5, 6  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: