Þú veist að það er kreppa þegar fiskbollur í dós eru kallaðar góður matur.
Þú veist að það er eitthvað að þegar ekkert gengur upp... Glottir eins og Kapteinn Augljós
Þú veist að það er komin kreppa þegar starfsmaður í bónus bestar fyrir þig innkaupin.
Þú veist að þú ert smá skotinn þegar þig dreymir vissa tegund drauma um vissa manneskju hverja nótt.
Þjer vitið að kóbalt hlýtur að vera nærri þegar flest innlegg ofan við innlegg yðar á síðunni innihalda mikið af bláum lit.
Þú veist klárlega að þú ert búinn að vera OF lengi í vinnuni þegar þú drattast heim um miðnætti.
Þetta er nú meiri þráðurinn! ljómar upp
Þú veist að líf þitt er óspennandi þegar þú veinar af hlátri yfir textuðum myndum af köttum.
Þú veist að þú ert orðinn nörd þegar þú verður kynferðislega spenntur yfir því að tengja usb kubb í tölvuna.
Þú veist að Gestapó er orðið dauft þegar helvítið hann Jarmi á áhugaverðustu innleggin. Fjandinn hafi það.
Þetta er nú meiri þráðurinn! ljómar upp
Þú veist að líf þitt er óspennandi þegar þú veinar af hlátri yfir textuðum myndum af köttum.
Þú veist að lífið er YNDISLEGT þegar þú veinar af hlátri yfir textuðum myndum af köttum!
Haha, já reyndar glottir eins og fífl
Þú veist að þú ert orðin bitur júnka þegar þú setur smokk á víbradorinn þinn og færð höfnunartilfinningu þegar hann verður batteríslaus.
Úps... ég las þetta fyrst sem KÖFNUNARTILFINNINGU! Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Þú veist að þú þarft að fara að taka til þegar þú sérð eitthvað hreyfast ofan í ruslakörfunni...
Þú veist að þú ert orðinn of drukkinn þegar þú heldur að klósettsteinninn í pissuskálinni sé frí mynta.
Þú veist þú ert búinn að snúa sólarhringnum við þegar þú færð ofbirtu í augun af tunglskininu.
Þú veist að þú ert orðinn ansi langt leiddur þegar þú rifjar upp gamla gestpó aðgangsorðið þitt.
Þú veist a' þú lifir á brúninni þegar hápunktur dagsins hjá þér var að þú breyttir um lykilorð á Moggablogginu þínu.