Mjög finnst oss á skorta að fram hafi komið með skýrum hætti hjá Nehanderdalusi Kreppulusi hvað abi er. Förum vjer því formlega fram á skýringar á því en getum þó nú þegar tilkynnt að vjer munum ef svo ber undir alfarið neita að samþykkja að það geti átt eitthvað skylt við apa.
Ómakið yður eigi, herra forseti. Oss sýnist, sem þetta barn hafi verið andvana fætt. Það var einungis virkt í um tvær klukkustundir, og var þar að auki einungis vallæst.
Ég held nú að skýring Hvæsa hafi verið nærri lagi. Téður abi var nefmæltur afi einhvers, en eins og eldri borgara sæmir, ráfaði hann eitthvað burt þegar hann missti áhugan á þessu.