Velkomin á árshátíðina lömbin mín.
Ég býð einn á línuna.
Skál! ۩
Skál Hlebbi minn. Þetta var vel til fundið verð ég að segja.
Mix skaltu fá, Væni. Úrval á barnum mínum er fátæklegt, þó á ég alltaf nóg af viskíi, hvannarótarbrennivíni, ákavíti, apríkósulíkjör, Kalda og Mix. Svo býð ég upp á bollu sem samanstendur af öllu fyrrgreindu auk niðursoðinna mangóaldina frá Thai Pride.
Hljómar vel, finnst mér. Er ekki markmiðið að komast á sporbaug hvort eð er?
Þetta er líklega skárra en ekkert. Eða var það kannski Ekkert er skárra en þetta?
Þetta er síst óskárra er það sem ekki hefur neina vöntun á skárrunarskortsleysi.
Ég er Wurglesplator!
Það var mjög gaman hjá okkur þrátt fyrir að ég hafi verið edrú og keyrandi rútuna.
Gott mál. Hjá okkur var heldur fámennt, eins og sjá má hér að ofan, en verulega góðmennt. Bollan var góð.
Komin tími á Danska árshátíð þar sem við erum svo mörg orðin hérna í landi bauna.
Magister magicus! Ég hef áhyggjur af fjármögnun dönsku árshátíðarinnar hjá ykkur. Jú, þið ættuð að geta haldið hana á einhverri myndarlegri en fáfarinni járnbrautastöð, það er ókeypis. Høje Tåstrup var alltaf flopp, örugglega fínt að vera þar, jafnvel hægt að kúra þar í svefnpoka þegar höfgi fer yfir mannskapinn. Áfengið reddast með því að safna upp hálfkláruðum bjórflöskum á víðavangi og redda þannig búsinu. Þá er eftir að græja ferðakostnað innanlands en það ætti að hafa safnsast nóg fyrir því hjá Ekstrablaðinu þarna um daginn, bara drífa í að sækja um hjá þeim.

Ég var einmitt á Høje Tåstrup lestarstöðinni þessa helgina, tvisvar. En ég þori ekki þangað aftur.
Magister magicus! Ég hef áhyggjur af fjármögnun dönsku árshátíðarinnar hjá ykkur. Jú, þið ættuð að geta haldið hana á einhverri myndarlegri en fáfarinni járnbrautastöð, það er ókeypis. Høje Tåstrup var alltaf flopp, örugglega fínt að vera þar, jafnvel hægt að kúra þar í svefnpoka þegar höfgi fer yfir mannskapinn. Áfengið reddast með því að safna upp hálfkláruðum bjórflöskum á víðavangi og redda þannig búsinu. Þá er eftir að græja ferðakostnað innanlands en það ætti að hafa safnsast nóg fyrir því hjá Ekstrablaðinu þarna um daginn, bara drífa í að sækja um hjá þeim.
Ojæja góði minn.
Maður er ekki svo illa haldinn að maður þurfi að halda að sér höndunum í áfengiskaupum hér í Dk og Hoje Tåstrup forðast ég.
Ég var nú meira að spá í hvort ekki væri hægt að leigja eins og eina sveitakrá á miðju Jótlandi eina helgi og halda þetta þar bara fljótlega á nýju ári.
Það var reyndar skálað fyrir ykkur öllum
Djöfull ég var svo nálægt því að komast.Blótar herfilega og rífur hár sitt