Hmmm, jæja, er ekki kominn tími á konurnar að hefja málningar ferlið svo þær verði nú tilbúnar er rútan fer á skrið ?
Þið eruð alltaf svo lengi að öllu.Glottir eins og fífl
Ég var að koma úr sturtu, nú hefst hið eiginlega árshátíðardekur! Gefur frá sér vellíðunarstunu
♪♪A dúmmada dúmmada dúmma dei....
Aaað innan ég mæli með pólítex,
texið er efnið sem endist best
að utan ég mála með útitex
pólítex innaná útitex utaná♪♪
Lækkar sig í svaka bassa
♪♪Texið er efnið sem segir seeex♪♪
Ég held að það dugi ekkert minna en Hempels skipalakk.
♪♪A dúmmada dúmmada dúmma dei....
Aaað innan ég mæli með pólítex,
texið er efnið sem endist best
að utan ég mála með útitex
pólítex innaná útitex utaná♪♪
Lækkar sig í svaka bassa
♪♪Texið er efnið sem segir seeex♪♪
grípur um hreðjarnar og hækkar sig um áttund
♪♪Seeeem seeeegir seeeeeeeeex!♪♪
Spurning um að fara að koma sér í dressið. Von er á gestum hvað úr hverju.
Og já - það er ekki laust við að maður sé farinn að hlakka aðeins til.
Já, svo var ég að muna eftir ætinu, og panta pizzur sem ég næ í á eftir. Þær verða til eftir einungis 20 mínútur. Mikið svaðalega er hann Wilson alltaf fljótur að baka.
Það verður nú gaman að hitta aftur gamla félaga, já og þessa sem eru að koma fyrsta sinni líka.
Skál xT & gleðilega hátíð, góðir félagar.
Hittumst heil;
Skál xT & gleðilega hátíð, góðir félagar.
Hittumst heil;
Vér tökum kjartanlega undir með seinasta ræðumanni.
Er ekki klassi að vera bara edrú?
Það tilkynnist hér með opinberlega, að vér höfum tapað nafnspildi voru, enda var það anzi gjarnt á að detta af oss á árshátíðinni. Hafi nokkur séð það og tekið, er sá hinn sami vinsamlega beðinn um, að koma um það skilaboðum til vor.
Ofangreind beiðni á við öll kyn.
Lesist: Tina liggur spjaldið nokkuð í skorunni?
Ég týndi líka nafnspjaldinu mínu enda var það mjög laust og alltaf að detta úr. Mér er svo sem ekki sárt um það nema hvað gaman væri að eiga tilvitnunina, sem þar stóð. Ég held ég muni hana samt.
Árshátiðin var mjög skemmtileg og gaman að hitta alla, sem þar voru. Ljómar upp
Lesist: Tina liggur spjaldið nokkuð í skorunni?
Mitt var alltaf að detta af líka. Ég týndi því allavega tvisvar.
Ég átti tvö nafnspjöld.. núna á ég samt bara eitt. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Lesist: Tina liggur spjaldið nokkuð í skorunni?
Hún hlýtur þá að senda það/þau í einkapósti.
Eftir umfangsmikla leit í öllum skorum get ég tilkynnt að þar leyndust engin nafnspjöld.
Ég missti mitt einusinni, en það fannst. Takk fyrir kvöldið, allar hamingjuóskirnar og viðurkenninguna.