...og því tengt:
Úff, var að heyra það í sjónvarpinu og kem því ekki úr hausnum á mér!
♪♪Ertu skarpari en skólakrakki...................♪♪
Baggalútur - Gefðu mér smakk... slæmt því setningin "Amma þú ert drullusokkur" virðist festast asni vel...
Nú í augnablikinu eru það Haffajól Starir þegjandi út í loftið.
Núna rétt áðan kom lagið Gardenparty í RUV..... Það helvíti settist strax í hausinn á mér. Rækallans Mezzoforte!
Nú man ég ekki hvort minnst hefir verið á það áður, en lagið Jet Boy Jet Girl/ Ca Plane Pour Moi/Einn dans við mig er assgoti þaulsætt í heila mínum
Helvítis gleði- og stuðlagið sem Raggi Bjarna og Jónsi-í-svörtum-fötum syngja. Haddería-haddera, minnir mig að það heiti.
Það er a.m.k. búið að vera límt við heilann í mér í allan dag.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Þetta lag festist á heilanum:
♪♪♪ Þessi fallegi dagur ♪♪♪
Líka hér, með Tjarnarkvartetnum.
Stafalagið. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það veit örugglega mjög fáir hvaða lag þetta er. Mögulega einhverjir foreldrar sem eru duglegir að horfa á Söngvaborg með börnunum sínum. Hræðilegt lag.. og það límist á heilann.
http://www.youtube.com/watch?v=zTOffYj5TxU&feature=related
Ekki slæmt... alls ekki slæmt.
Kallinn sem keyrir mig í skólann. Af barnadisknum Gilligill
B-I-B-L-Í-A er bókin bókanna...
Ælir