Kynning hefst hér með. Trúi ég því best að óheyrt sé að fjögurra ára íbúi heimsveldisins geri slíkt. Þetta met gæti því staðið óhaggað lengi vel! (Óyggjandi sönnun er þó ekki í mínum höndum og bið ég mér fróðari menn að véfengja trú mína.)
Ég vil byrja á þökkum sem fyrir löngu ættu að vera goldnar. Skabbi stendur þar í flokki með Krummo, Barbapabba, Aðalöndinni (blessuð sé minning hans og megi mikil von um upprisu hans lifa), Lostahrossi og Haraldi Austmann. Þessir aðilar gerðu vonlausar tilraunir til að bragbæta mig á fyrstu dögum fyrra lífs og var sjálf mitt því miður ekki tilbúið í svo hreinskilna gagnrýni og beinskeyttar lagfæringar. Ég þakka svo aftur þeim sem leiðbeina mér í bragfræði þessa lífs, sér í lagi Andþóri og Z. Natan(i) en frábið mér allan hroka í þeim efnum (þeir taka þetta til sín sem vilja ef skelin er ekki þykk, ég nefni engin nöfn)
Meðan ég geri hreint fyrir mínum dyrum þá bið ég alla sem fundið hafa fyrir hroka af minni hálfu afsökunar, nema þeir hafi átt það skilið! (þykk skel?)
Því svo er mál með vexti að rím þykir mér afskaplega skemmtilegt og ef leirburður minn gæti flutt með sér ísjaka niður Breiðamerkursand sem rifti jafnvel stöndugri brú hefði ég stórfenglega gaman af. Skólastofan verður mér til halds og trausts en ég bið fyrir fram afsökunar fyrir obbosíin sem koma skulu utan hennar og lofa að vanda mig þó stundum gleymi maður sér í ærslan.
Gott er að halda í barnið og frjósemina sem fylgir en íhuga þó vel áður en út er látið. Þetta er frjótt umhverfi sem hýsir allt frá skringilingum til húmorsins sérvitringa og er það helsti kostur Gestapóa að mínu mati. Að lokum fylgir stutt skýring á nafngiftinni sem er ekki flókin: ég fletti upp nafni sem mér fannst fyndið. Það stóð þó ekki lengi þegar ég komst að merkingunni. Annars segi ég bara skál í stútfullu ákavítisstaupi og höfum Bauv af stírónunni!
Skál karlinn!
Hvað varðar kynningu á ég nú alveg eftir að gera það... og er ég þó orðin 5 ára!
Ég ætla samt að geyma það aðeins lengur.
Já... ehm... ætli það sé þá ekki við hæfi að bjóða þig velkominn, þó seint sé?
Já, velkominn!xT
En ég á líka eftir að kynna mig... Ég hef hingað til verið of löt til þess. Er barasta að spá í að sleppa því.
Ég býð þér hér með velkominn aftur formlega... ekki hika við að spyrja á Skólastofunni... við erum öll enn að læra...
Var ég búin að kynna mig ? Klórar sér í höfðinu
Gerðirðu það ekki á Kaffi Blút í sumar? Hjálpar Villimeyju að klóra sér í höfðinu
Gerðirðu það ekki á Kaffi Blút í sumar? Hjálpar Villimeyju að klóra sér í höfðinu
Jú ég held það...
Nenniru að klóra aðeins fastar.. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Sorrí, get það ekki. Þessir vængir eru ekki mjög beittir...
en frábið mér allan hroka í þeim efnum (þeir taka þetta til sín sem vilja ef skelin er ekki þykk, ég nefni engin nöfn)
Ég tek þetta vitanlega til mín og er stoltur af. Hroka minn, besservisku og almenn leiðindi veður þú að þola framvegis sem fyrr. Einkum eftir þessa skemmtilegu afpöntun, nú er líkast til að ég sitji um þig. Gefur frá sér vellíðunarstunu
en frábið mér allan hroka í þeim efnum (þeir taka þetta til sín sem vilja ef skelin er ekki þykk, ég nefni engin nöfn)
Ég tek þetta vitanlega til mín og er stoltur af. Hroka minn, besservisku og almenn leiðindi veður þú að þola framvegis sem fyrr. Einkum eftir þessa skemmtilegu afpöntun, nú er líkast til að ég sitji um þig. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Gott þá slepp ég.
Ég ætla samt að taka þetta líka til mín.
Þakka móttökur hneigir sig djúpt og veifar hendi að gólfi svo það sjáist að engan pípara er að finna
Já hlebbi, ég bíð sko spenntur. En ef þú stekkur fyrir horn geturðu pípt á undan?
xT
Velkominn til leiks. Var ég búinn að kynna mig ? Klórar sér í höfðinu
Velkominn til leiks. Var ég búinn að kynna mig ? Klórar sér í höfðinu
Bíddu nú við, ert ÞÚ farinn að kynna ÞIG fyrir nýliðum? Eg hélt að þú sætir yfir busunarhliðinu með hinum illanum að móðga nýliða. Þetta er alger nýlunda. Verð ég nú að hætta að kalla þig strepó-kokkinn?