eru póarnir svona fokking lélegir að vera með á þráðunum þó að þeir séu innskráðir?Blótar herfilega og rífur hár sitt
Tja.. maður spyr sig. Klórar sér í höfðinu
é g var nú meira að spyrja ykkur.
Svo ég svari fyrir mitt leyti þá grúska ég stundum í gömlu efni og fylgist ekkert með þessu nýja á meðan. Nú eða þá að ég hef Gestapó opið þegar ég er að skoða eitthvað merkilegt á gagnvarpinu eða gera eitthvað annað og endurhleð gluggann meira til að fylgjast með en nokkuð annað, gef mér ekkert endilega tíma til að svara.
En það breytir því ekki að þið eruð alltaf best! Knúsar Uppa og lofar að skrifa fleiri innlegg á morgun
P.s. Hvers vegna skrifarðu hversvegna í einu orði en ekki tveimur?
Ég verð eiginlega að kvitta undir það sem Anna segir. Það er auðvitað nauðsynlegt að fylgjast með hverju falsmiðlarnir eru að ljúga að sótsvörtum almenningi...
Vinnu minnar vegna eyði ég um það bil 12-16 stundum á dag fyrir framan tölvuna. Ég er að jafnaði innskráður á þeim tíma en það myndi sennilega stofna til einhverra leiðinda ef ég eyddi öllum þeim tíma á Gestapó. Sem ég geri þó endrum og sinnum en þá er ég oft að grúska í eldra efni.
Ég er nú með í þann stutta tíma sem ég er landi og er innskráður. Ef ég sé ekkert spennandi til að spjalla um eða svara þá skrái ég mig út aftur.
Vinna
Ástæðan hjá oss er svipuð og hjá Önnu og Rattata. Það er svo óneitanlega mjög alvarlegt vandamál hvað vjer þurfum stundum að eyða miklum tíma í sk. 'raunheimum' (sem eru ekki til).
Það fer allt eftir gestagang hversu mikið ég er hér. Og svo ræður síminn miklu um það hversu mikið ég skrifa.
Vel er verjandi að rita 'hversvegna' í einu orði. En fjögur upphrópunarmerki! Allir sem nota fleiri en þrjú eru klikk. Um það má lesa í ágætri bók eftir mann sem rætt er um nú um stundir á bókagrínsþræðinum, Terry Pratchett. Fyrst hann sagði það, þá er það satt.
Um það mætti vafalítið rita langar lærðar greinar. Ég hreinlega veit það ekki.
Vel er verjandi að rita 'hversvegna' í einu orði. En fjögur upphrópunarmerki! Allir sem nota fleiri en þrjú eru klikk. Um það má lesa í ágætri bók eftir mann sem rætt er um nú um stundir á bókagrínsþræðinum, Terry Pratchett. Fyrst hann sagði það, þá er það satt.
Hann sagði þetta líka: [...] there is no higher life form than a librarian.
Ljómar óendanlega mikið upp
Hjá mér er tölvuræksnið í gangi meira og minna allan sólarhringinn. Þá er eldrefurinn yfirleitt opinn og á honum Gestapó. Svo svara ég ekkert alltaf þó ég skoði. Stundum hef ég ekkert til umræðunnar að leggja svo ég sit hjá.
Vegna vinnu.
Það er óþolandi hvað vinnan slítur í sundur daginn hjá manni.
Kæri Upprifinn.
Takk fyrir bréfið.
Mér þykir það leitt ef ég hef verið innskráður án þess að vera virkur. Það stafar af ýmsum ástæðum. Algengast er að tölvan sé í gangi með mig innskráðann meðan ég er staddur í hinum óvissu og hættulegu raunheimum. Það er þó ekki það versta, því stundum er ég svo ílla haldinn af heimskunni, að ég finn bara ekkert gáfulegt sem ég get lagt til l málanna. Stundum er líka allir virkir gestapóar hangandi í hinu mannskemmandi mafíuleikjum og það fælir mig mjög frá því að láta ljós mitt skína.
Kveðja;
Huxi.
P.s.
Hvað heldurðu að ég sé gamall og hvað lestu úr skriftinni.
H.
Ég er á kafi í rannsóknar- og undirbúningsvinnu vegna árshátíðar. Má ekkert vera að því að ausa úr viskubrunninum.
Rýkur út með blaðastafla, úfið hár og brjálæðisleg augu