Hvaða apaköttur hefur eyðilagt veðurvélina!? Fyrir viku stóð til að ég færi til Ísafjarðar og héldi þar erindi. Þá féll flug niður vegna veðurs. Þá var aftur reynt í dag, en við snerum við á punktinum einhversstaðar yfir Borgarfirði útaf einhverju helvítis roki í Skutulsfirði. Hafa Ísfirðingar eitthvað á móti mér?

Það er nokkuð augljóst að Ísfirðingar hafa komist yfir veðurvélina.
Já, þetta er blóðugt fyrir Ísfirðinga... Starir þegjandi út í loftið

Segðu. O sei sei.
Neita varðskipsmenn að flytja þig vestur? Eða er enginn raunverulegur vilji til að komast þangað?
Rankar við sér í japanska nuddpottinum sem staðsettur er í nýjustu viðbyggingu höfuðstöðva Veðurfarstofnunar Baggalútíska heimsveldisins, hálf soðinn og marineraður
Hvað er í gangi...? Staulast að risavöxnu skrifborðinu og kíkir á 50" skjáinn á veðusjánni
Hvur djörfullinn dínglandi... Sér að það er kúkur í fjarstraumshliðrunarveltuventlinum sem stýrir Vestfjarða veðrinu
Kallar á 3 baðfatamódel til að fjarlægja óþverran
Stillir á sól og blíðu um alla Vestfirði fyrir Gúnter
Kallar á Gúnterinn
Svona nú er þetta komið í lag, sjáðu bara sjálfur. http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/vestfirdir/#group=13&station=252 Stilltu bara á hádegi á laugardag.
Hverfur í fylgd baðfatamódelanna inn í hliðarherbergi og hallar á eftir sér leðurklæddri og gullsleginni harðviðarhurðinni

Hmm. Veltir því fyrir sér hvað Huxi vill inn í hliðarherbergi með 3 baðfatamódel og kúk
Nú, náttúrlega að hjálpa þeim að þrífa af sér bjakkið. Þetta er jú baðherbergi.
Ég þakka veitta aðstoð, en ég þurfti að vera þar á hádegi í dag. En við reynum bara aftur síðar.

Þar get ég því miður ekki hjápað þér. Fjórhemlunuarhjáveitukjarnasveiflarinn er bilaður svo að þessi nýja veðurvél sem ég hef verið að smíða, virkar ekki ennþá sem tímavél. Dæsir mæðulega og dragnast aftur að teikniborðinu.
Er veðurvjelin ekki bara komin í lag ? Oss fannst veðrið í dag frekar gott þó lítil væri birtan.

Veðurvélin virkar fínt, það er ekki vandamál. Það er bara töluvert erfitt að láta hana ganga á sjálfstýringu mjög lengi í senn því að hún á það til að afstilla sig. Ég ætlaði að stilla hana á vetur og snúa mér síðan að, hérna sko... stjórnunarstörfum. Ýtir kassanum með 75 ára koníakinu sem hann var að sækja í ÁTVB,á kostnað ríkisins, betur undir borðið svo Vlad sjái hann ekki Svo hefur minn sérlegi aðstoðarmaður B. Ewing verið í barneignarleyfi svo að ég þarf að gera alla hluti einn. Svo eru alltaf einhverjir að kvarta yfir veðrinu , sumum finnst of heitt, öðrum of kalt, sumir vilja ekki hafa rok á meðan að aðrir eru að kafna í logninu... Dæsir mæðulega og lítur upp á forsetann
Geturu sett á diskóveður?
Ég stilli bara vélarrassgatið á breytilegt og sé svo til eftir jól... Blótar herfilega og rífur hár sitt Ég höndla ekki þessa streitu... Ég verð að komast í frí... Vöðlar sínu hafurtaski, (ásamt 2 baðfatamódelum sem voru á rangli þarna), ofan í koffort. Aðstoðarmaður minn sér um skrifstofuna næstu vikurnar. Hann getur varla þurft lengra fæðingarorlof. Á ekki að fara ferma Bebe Ewing á næsta ári? Strunsar út af skrifstofunni og skellir hraustlega á eftir sér
Rekur hausinn inn um kattarlúguna og gólar Nei Tigra þú getur ekki fengið diskóveður!
Á ég að nota eðlisfræðiþekkingu mína til útreikninga varðandi þessa veðurvjel?
Samkvæmt þessari mynd: http://www.lifestyle.is/myndir/Screenshot.png þá er veðurvélin greinilega á Egilsstöðum þessa stundina og alls ekki í lagi

Þetta er stórmerkilegt. Ætli Kárahnjúkavirkjun hafi verið yfirskin til að stórefla frystimátt veðurvjelarinnar?

Áðan sá ég frostið í 80 gráðum... sparkar í vélina og vonar að hún nái að frysta Austfirði