— GESTAPÓ —
Fá reykinn í dós.
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3  
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
GerviSlembir 28/10/08 09:04

Ég veit ekki hvað er í fréttum á fróni en hér í mörkinni kemur fram í því ekki svo góða blaði MetroXpress að það sé kominn nýr drykkur á markað sem inniheldur 15% nikótín.

Fyrst kom tyggigúmmíið, svo plásturinn og nú drykkurinn. Þessi drykkur kemur frá Hollandi frá fyrirtækinu United Drinks and Beauty Corporation, ekki amalegt nafn á fyrirtæki það. Drykkurinn á að slökkva á löngun í sígarettur í um fjórar klukkustundir.
Drykkurinn er með ávaxtabragði og afrísku "urteekstrakt" sem, samkvæmt framleiðendum, gefur fólki orku.

Drykkurinn á að koma á markað á Englandi fyrir jól og vonandi kemur hann sem fyrst til Íslands og Danmerkur svo reykingamenn geti fengið sniðuga hjálp við að hætta að reykja. En ég hætti nú að reykja fyrir tveim mánuðum síðan. Það var kvöl og pína, hreinlega djöfullegt, en er nú að mestu yfirstaðið.

Þetta er eitthvað sem maður verður að prófa. En þess má geta að framleiðendur ætla að gera Evrópu reyklausa fyrir árið 2010, sem mér finnst öfga bjartsýnt.

Drykkurinn heitir því lýsandi nafni "Liquid Smoking".

Slembimálaráðherra
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 28/10/08 09:27

Liquid neftóbak... er eitthvað sem mig vantar... öh, ég meina sko fyrir vin minn... ‹horfir flóttalega í kringum sig›

To live outside the law, you must be honest.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Wayne Gretzky 28/10/08 09:29

Ibba K. S.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 28/10/08 09:38

Oj.

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Andþór 28/10/08 10:01

Kemst svona í gegn hjá lyfjaeftirlitinu? ‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Áróðursmeistari forsetans og sendiherra Suðurskauts, norðurskauts og annarra heimsálfulausra ríkja.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/10/08 11:25

GerviSlembir mælti:

drykkur á markað sem inniheldur 15% nikótín.

15% ?? Slíkur drykkur hlýtur að vera banvænn ‹Íhugar að kaupa allan heimslagerinn af drykknum og nota hann í nýtt gjöreyðingarvopn gegn óvinum ríkisins›.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 28/10/08 11:32

Nú giska ég á að þessi baukur sé 250ml.
Ekki séns að maður geti drukkið 37,5ml af nikótíni og lifað það af.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 28/10/08 11:55

Jarmi mælti:

Nú giska ég á að þessi baukur sé 250ml.
Ekki séns að maður geti drukkið 37,5ml af nikótíni og lifað það af.

Já, þetta er rannsóknarefni.

Þær heimildir sem ég hef fundið um drykkinn herma að baukurinn taki einmitt 250 ml. Sums staðar eru gefnir upp 275 ml, en 10% til eða frá munar nú ekki miklu.

Þá komum við að þessu:

http://en.wikipedia.org/wiki/Nicotine#Toxicology

40–60 mg (0.5-1.0 mg/kg) can be a lethal dosage for adult humans. This designates nicotine as an extremely deadly poison.

Þéttleiki nikótíns er þarna gefinn upp sem 1,01 g/cm³, sem jafngildir 1,01 g/ml.

Miðað við 250 ml dós eru þetta því 250 ml * 0,15 * 1,01 g/ml = 37,875 g = 37875 mg af nikótíni, eða hátt í 1000 sinnum banvænn skammur.

Reyndar fann ég í fljótu bragði bara eina heimild fyrir því að drykkurinn innihaldi 15% nikótín - en eitthvað passar klárlega ekki þar. Það er nokkuð ljóst.

Leiðréttingar eru vel þegnar þó mér sýnist þetta hárrétt reiknað.

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 28/10/08 12:19

Það hlýtur að eiga að vera 1,5% nikótín.

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 28/10/08 12:22

Tigra mælti:

Það hlýtur að eiga að vera 1,5% nikótín.

Það væri ennþá 3,75ml af nikótíni, sem er ennþá fáránlega hættulegt.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 28/10/08 12:30

Hvað er svo alkahólmagnið í drykknum?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/10/08 12:31

Oss dettur helst í hug að þetta eigi að vera 15 ppm.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 28/10/08 12:35

Vladimir Fuckov mælti:

Oss dettur helst í hug að þetta eigi að vera 15 ppm.

Ef þið haldið áfram að tala prósentuna niður endar drykkurinn sem óseljanlegt prump. Þannig varð kreppan til.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 28/10/08 13:10

Offari mælti:

Vladimir Fuckov mælti:

Oss dettur helst í hug að þetta eigi að vera 15 ppm.

Ef þið haldið áfram að tala prósentuna niður endar drykkurinn sem óseljanlegt prump. Þannig varð kreppan til.

‹Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri›

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 28/10/08 13:48

Annars rakst ég á þetta þegar ég var að fara yfir útreikningana:

http://www.calculateme.com/Volume/CubicCentimeters/ToMilliliters.htm

Þetta er nánast zenískt í tæru tilgangsleysi sínu ...

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 28/10/08 14:02

Þarfagreinir mælti:

Annars rakst ég á þetta þegar ég var að fara yfir útreikningana:

http://www.calculateme.com/Volume/CubicCentimeters/ToMilliliters.htm

Þetta er nánast zenískt í tæru tilgangsleysi sínu ...

‹Grípur um kvið sjer, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hexia de Trix 28/10/08 14:19

‹Leggst líka í fósturstellingu á gólfið, grípur um kvið sér og emjar af hlátri við hliðina á Vlad›

Alma Mater Baggalútíu • Kakómálaráðherra • Yfirbókavörður Baggalútíu • Forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 28/10/08 14:21

‹Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið›

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
     1, 2, 3  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: