Kæru vinir í Pratchett. Munið þið hvað hann sagði um upphrópunarmerki og klikkun, og vitið þið hvort það eigi líka við um spurningamerki (sbr. þráðinn „Hversvegna????“)?
Four exclamation marks. A sure sign of someone who wears his underpants on his head.
Terry Pratchett - Maskerade
„Multiple exclamation marks […] are a sure sign of a diseased mind.“ Eric
Ræskir sig
Tvö orð!
GOOD OMENS
Eftir Myrkrameistarann Neil Gaiman og Terry Pratchett, krúttlega gamla kallinn með heimspekilega húmorinn. Besta blanda ever.
Þessi bók er biblían mín!
Talandi um snillinginn Pratchett - sá maður veit sínu viti:
We could, for example, have pointed out that Darwin's theory of evolution explains how lower lifeforms can evolve into higher ones, which in turn makes it entirely reasonable that a human should evolve into an orangutan (while remaining a librarian, since there is no higher life form than a librarian).
[Science of the Discworld I]
Ljómar upp
Ræskir sig
Tvö orð!
GOOD OMENS
Eftir Myrkrameistarann Neil Gaiman og Terry Pratchett, krúttlega gamla kallinn með heimspekilega húmorinn. Besta blanda ever.
Þessi bók er biblían mín!
Jább. Ætti að vera skyldulesning!
Dæmi um málsgrein í þessari bók sem er örugglega skrifuð af Neil Gaiman:
"There was a tearing sound. Death's robe split and his wings unfolded. Angel's wings. But not of feathers. They were wings of night, wings that were shapes cut through the matter of creation into the darkness underneath, in which a few distant lights glimmered, lights that may have been stars or may have been something entirely else."
Og önnur sem er alveg pottþétt hripuð niður af Pratchett:
"All tapes left in a car for more than about a fortnight metamorphose into Best of Queen albums."
Þessir tveir saman um eina fáránlega skáldsögu? Víí!
Uppáhaldið mitt var samt að einn hinna fjögurra Horsemen of the Apocalypse væri hættur störfum (Pestilence, því það er búið að finna upp fúkkalyf) en í staðinn var kominn nýr: Pollution.
Já og hitt uppáhaldið var klárlega að Crawley talar við plönturnar sínar til að þær vaxi betur. Og það virkar, því hann tekur reglulega eina plöntuna (þá óásjálegustu), gengur með hana fram hjá öllum hinum og segir Say goodbye to your friend! Svo fleygir hann viðkomandi plöntu út um gluggann - og að sjálfsögðu keppast hinar plönturnar við að vaxa sem mest!
Ahh já... Finnur fyrir þægilegri hlýju í lifrinni Góðar minningar... og þeir fjórir búnir að nútímavæðast og skipta hestunum út fyrir mótorhjól! Ég verð að fara að lesa þessa bók aftur. Það yrði þá í fjórða skiptið, minnir mig.
Það er held ég eitthvað svipað hjá mér... nema það eru alltof mörg ár síðan síðast!
Talandi um snillinginn Pratchett - sá maður veit sínu viti:
We could, for example, have pointed out that Darwin's theory of evolution explains how lower lifeforms can evolve into higher ones, which in turn makes it entirely reasonable that a human should evolve into an orangutan (while remaining a librarian, [b]since there is no higher life form than a librarian[/b]).
[Science of the Discworld I]
Ljómar upp
Svo satt, svo satt.
Grípur Dewey
Þó að þetta eigi kannski ekki við bókagrín, þá er þetta special surprise treat fyrir mögulega Neil Gaiman aðdáendur.
Þó að þetta eigi kannski ekki við bókagrín, þá er þetta special surprise treat fyrir mögulega Neil Gaiman aðdáendur.
Frábært. Verst að þetta nýtur sín engan veginn í innbygðu tölvuhátölurunum. Ég þarf að fara að gera eitthvað í heyrnartólaleysinu (nánar til tekið skorti á getu til að nota heyrnartólin við tölvuna - ég á fín heyrnartól).
P.S. Það gæti reyndar reynst erfitt, þar sem búðin hvar ég keypti tölvuna fór á hausinn, einmitt þegar verkstæðisfýrinn þar var farinn að vinna í málinu. Dæmigert.
Hugsið ykkur! Terry Gilliam var byrjaður að vinna að kvikmynd uppúr Góðum fyrirboðum, þegar hann missti fjármagnið! Það hefði orðið flippað mergjuð mynd.
Sveiar
Það er víst mjöööög langt síðan. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Grr já, mér fannst það hundleiðinlegt. En vona enn þá að einhver ríkur smekksmaður sjái af einhverju fjármagni í þetta frábæra verkefni.
En á móti kemur að ef myndin verður gerð, þá VERÐUR hún að vera alveg ótrúlega góð. Annars er hætta á að hún eyðileggi bókina eins og oft hefur gerst.
Ég er ansi hræddur um að það þurfi einhvern verulega góðan leikstjóra/handritshöfund til að gera ásættanlega mynd eftir Good Omens. Annars verður þetta svona eins og Eragon eða Narniu myndirnar... Óttalega klént eitthvað.
Það er þó ekki þar með sagt að ég treysti ekki Terry Gillingham... Þó held ég að annað hvort verði hans útgáfa alveg frábær eða algjörlega glötuð.